Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil grípa þau orð sem voru sögð hér síðast, undir lok síðustu ræðu; samkennd, samstaða með því fólki sem býr á þessu örlagaríka svæði sem eru Suðurnesin, Grindavík, og undirstrika það af heilum hug að við hér í þingsal munum gera allt til að eyða óvissu og treysta öryggi fólks, enda er það líka okkar hlutverk. Það er okkar hlutverk til að mynda, ef þær tillögur sem við öll hér í þinginu höfum staðið að varðandi Grindavík passa ekki inn í þá mynd sem fólk taldi sig vera að ganga inn í, þá einfaldlega skoðum við það. Það er lykilatriði að mínu mati að hér verði mótaðar tillögur sem koma til móts við Grindvíkinga, við Suðurnesjafólkið okkar, sem eyða óvissu og treysta öryggi.
Það er svo sannarlega rétt sem hefur komið fram hér að við erum að horfa upp á í rauninni algjört kraftaverk vera að gerast, kraftaverkfólk, í þeim aðgerðum sem við erum að upplifa núna, við að koma á almennilegum leiðslum, heitu vatni, treysta kalda vatnið, treysta rafmagnið til Suðurnesjamanna þannig að þeir þurfi ekki að búa áfram við þetta og sem betur fer er heita vatnið að komast á. Í rauninni hafa allar þessar hamfarir sýnt okkur það og við höfum séð það líka annars staðar á landinu að við Íslendingar erum góð í því að, sumir vilja nota stór orð og segja heimsmethafar í því að bregðast við hamförum, ég vil alla vega segja að við séum góð í að bregðast við hamförum, góð í að bjarga hlutum.
Það sem við verðum hins vegar að treysta og gera betur, ekki síst hér í þingsal, er að leggja meiri áherslu á að taka ákvarðanir til lengri tíma, bjóða upp á langtímasýn, bjóða upp á það að við séum með stjórnvöld sem taka ákvarðanir, bjóða upp á það að tekið verði á innviðaöryggismálum heildstætt. Tilfinning fólks, og ég hef áður bent á það hér, hefur verið sú að ákveðin svæði fái ákveðna athygli í skamman tíma í senn, eftir snjóflóð, eftir aurskriður, eftir jarðskjálfta, og síðan taki bara næsti atburður við og fókusinn fari af fyrri stöðum. Þannig að við verðum öll hér að geta haft marga bolta á lofti í einu.
Þegar við köllum eftir langtímasýn — og Viðreisn leggur gríðarlega áherslu á að við bjóðum upp á skýra afstöðu þegar kemur að því. Það þýðir að við þurfum að taka ákvarðanir, ákvarðanir sem snerta okkur næstu misserin og þá þurfum við að taka þær í dag. Ég verð að segja alveg eins og er, virðulegur forseti, að mér finnst staðan eins og hún er vera líka áminning um að við verðum að rjúfa áralanga kyrrstöðu í orkumálum. Við þurfum að fá ríkisstjórn sem tekur ákvarðanir til framtíðar. Við verðum að hafa ríkisstjórn sem þorir líka að taka næstu skref í að einfalda leyfisveitingaferli. Við erum m.a. að sjá þá birtingarmynd sem er núna verið að leysa t.d. með Suðurnesjalínu 2 en við þurfum að skoða þetta heildstætt og við þurfum að gera allt til þess að um leið og við tökum tillit til náttúrunnar þá einföldum við líka kerfið þannig að þetta verði gegnsætt, að ferlinu sé ekki komið upp til þess eingöngu að tefja málið heldur líka til þess að treysta innviði landsins.
Við erum að horfa upp á ríkisstjórnina, til að mynda í orkumálum og í fleiri málaflokkum, eiga erfitt með að taka ákvarðanir í erfiðum málum, oft viðkvæmum málum. Almenningur á ekki að þurfa að velta því fyrir sér hvort Sjálfstæðisflokkurinn eða Vinstri græn séu í tilfinningalegu jafnvægi eða ójafnvægi þennan eða hinn daginn. Það sem fólkið á Suðurnesjunum og landsmenn allir eru núna að velta fyrir sér er að við þurfum ákvarðanir sem veita okkur meira öryggi inn í framtíðina. Við erum góð í því sem við erum að gera núna; viðbrögðum, hvernig á að halda utan um fólkið. Við finnum leiðir eins og varðandi fjárhagsmálin. Þeim eiga Grindvíkingar til að mynda ekki að hafa áhyggjur af, það er okkar að leysa. En við verðum líka að þora að bjóða upp á ákvarðanir og langtímasýn til að eyða síðar meir óvissu hjá fólki, börnunum okkar og okkar framtíðarkynslóðum.
Verkefnin eru mörg og verkefnin eru ærin en við eigum að gera allt til þess að (Forseti hringir.) draga úr óvissu eins og kostur er. Já, við kunnum að misstíga okkur, já, það fylgir því oft að taka ákvarðanir í stórum málum en við verðum að halda áfram og hlusta m.a. á fólkið okkar (Forseti hringir.) og hlusta á þá gagnrýni sem upp kemur hverju sinni, allt til þess að gera samfélagið okkar betra.