154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

Áhrif náttúruhamfara á innviði á Suðurnesjum, munnleg skýrsla forsætisráðherra.

[16:35]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir ágæta umræðu. Ég hlýt hins vegar að árétta það sem kom fram hér í minni fyrri ræðu að það hefur auðvitað verið unnið að þessum málum stöðugt undanfarin fjögur ár. Það hefur verið unnið gríðarlega mikið starf, bæði hvað varðar greiningar og undirbúningsvinnu, m.a. að kortleggja mikilvæga innviði sem eldgos og jarðhræringar geta haft áhrif á og þar með talið íbúabyggð, heitt vatn, kalt vatn, rafmagn, fjarskipti, vegir, orkuver, borholur og fráveita. Samhæfingarteymið okkar hefur útfært skipulag um viðbúnað og samhæfingu vegna jarðhræringa sem hefur tryggt aðkomu hlutaðeigandi stofnana, sveitarfélaga og annarra lykilaðila. Þetta teymi hefur miðlað upplýsingum til ríkisstjórnar og ráðherranefndar og þjóðaröryggisráðs og mér finnst mikilvægt að halda því til haga að á þriðja tug minnisblaða hafa verið lögð fyrir ríkisstjórn Íslands. Það hafa verið haldið töluvert margir fundir í ráðherranefnd um samræmingu mála og þjóðaröryggisráð ítrekað fjallað um málið á sínum fundum þannig að það þarf enginn að efast um það að unnið hafi verið að þessum málum stanslaust. Við hefðum ekki getað tekið ákvörðunina sem við tókum hér fyrir jól um að byggja varnargarða nema af því að við tókum aðra ákvörðun tveim árum fyrr þegar Verkís, Háskóla Íslands, Veðurstofu Íslands og verkfræðiskrifstofunni Eflu var falið að gera greiningu á innviðum og tillögur að varnaraðgerðum. Á meðan fyrsta eldgosinu stóð 2021 voru byggðir fimm varnargarðar og varnir við ljósleiðara við Suðurstrandarveg þannig að það er ekki eins og varnargarðarnir hér fyrir jól, sem einhverjir telja að hafi dottið ofan af himnum hafi gert það, heldur var búið að vinna alla þessa greiningarvinnu þannig að það var hægt ráðast hratt í framkvæmdir sem skiluðu árangri.

Ég vil segja það líka að það liggur auðvitað fyrir frá því í sumar langtímaáhættumat Veðurstofu Íslands um Reykjanesskaga vestan Kleifarvatns. Það áhættumat sem núna stendur fyrir dyrum snýst um að taka allan skagann undir en þetta áhættumat liggur fyrir vegna hraunrennslis-, gasmengunar- og gjóskufallsvár. (Forseti hringir.)

Mér finnst líka mikilvægt að ítreka það, af því að hér var því haldið fram að hugmyndum um olíukatla hefði verið hafnað af ríkisstjórn, að það er ekki svo heldur er sú leið eins og nokkrar aðrar í skoðun af hálfu almannavarna þar sem allt er skoðað og reiknað út. (Forseti hringir.) En það var ákveðið að forgangsraða aðgerðum um varnargarðar sem voru metnar skila betri árangri. (Forseti hringir.) Mér finnst bara mikilvægt, þótt ég hafi stuttan tíma, að koma þessu á framfæri. En hins vegar fagna ég allri gagnrýninni umræðu. Við þurfum að sjálfsögðu á henni að halda til að geta tekið góðar ákvarðanir til lengri tíma.