154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

bókun 35 við EES-samninginn.

635. mál
[18:32]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Nei, ég held að það sé aðeins byrjað að slá í gömlu. Mig rekur ekki minni til þess, svo að það sé sagt alveg hreint út. En hins vegar vil ég taka undir með hv. þingmanni þegar kemur að því hvernig við nýtum EES-samninginn. Ég ætla líka að leyfa þeim sem hafa talað í þá veru — eins og t.d. hæstv. utanríkisráðherra í gegnum tíðina sem hefur talað mjög einarðlega fyrir því að efla okkar réttindagæslu og hagsmunagæslu úti í Brussel. En síðan hefur reyndar sami flokkur líka stjórnað fjármálaráðuneytinu og getað haft svolítið stjórn á því að efla þetta og það hefur aðeins verið eflt en ekki nægilega.

Ég held líka að til þess að raddir okkar — af því að þær eru mismunandi, okkar nálgun er mjög mismunandi og það er eiginlega aðdáunarvert að fylgjast með Norðmönnum hvernig þau gæta sinna hagsmuna, byrja miklu fyrr í ferlinu og eru með mikinn mekanisma til að sinna sínum hagsmunum innan EES-samstarfsins. En það er tvennt sem ég vil draga sérstaklega fram og ég held að við deilum því, þessi blýhúðun sem á sér stað. Það er ekki ESB að kenna eða í EES-samningnum, það eru íslenskir ráðamenn sem hafa staðið fyrir þessu og bera mesta ábyrgð á að við erum alltaf að íþyngja regluverkinu hérna heima. Það er ekki þannig að vondu embættismennirnir eða ráðafólkið innan ESB sé að segja okkur að gera það. Þetta er algjörlega heimatilbúinn íslenskur vandi.

Ég vil líka taka undir með hv. þingmanni þegar hann talar um Schengen-samstarfið, sem er gríðarlega mikilvægt fyrir okkur. Við áttum okkur á því þegar þegar við erum að heimsækja lögregluna og samtalið er á viðkvæmum nótum, að það er mjög mikilvægt samstarf fyrir okkur í öryggislegu tilliti o.s.frv. En við eigum að nota okkar möguleika til þess að stjórna landamærunum betur, mikil ósköp. Við verðum að meta það hverju sinni hvenær við ætlum að beita þeim tólum og tækjum sem EES-samningurinn, Schengen-samningurinn veitir okkur. Til þess erum við fullvalda þjóð, alveg eins og þær þjóðir sem eru innan ESB og eru í EES-samstarfinu, þær eru að nýta sér það svigrúm sem þær hafa innan þess ramma sem þeim er búinn og við eigum ekkert að haga okkur öðruvísi. Við eigum að nýta þau tækifæri og þau tól sem gefast hverju sinni með því að meta hagsmuni Íslands líka.