bókun 35 við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Eftir því sem árin líða því sjálfsagðari verða réttindin sem fylgja EES-samningnum. Mikilvægasti viðskiptasamningur Íslands er orðinn 30 ára gamall eins og hæstv. utanríkisráðherra fór yfir í framsögu sinni. Meira en þriðjungur Íslendinga er fæddur eftir að samningurinn tók gildi. Enn fleiri muna ekki íslenskt samfélag öðruvísi en í EES. Við getum hreinlega ekki ímyndað okkur íslenskt samfélag án samningsins og ávinningurinn af EES-aðildinni er ótvíræður þótt það sé ekki einfalt að meta heildaráhrif samningsins. Það er samt óhætt að telja til aukningu í landsframleiðslu og ráðstöfunartekjum einstaklinga samhliða stórauknum útflutningi okkar á vöru og þjónustu til annarra ríkja á EES-svæðinu. Það er auðvitað góður mælikvarði, sömuleiðis fjölmörg tækifæri á sviði menntunar, vísinda, rannsókna og nýsköpunar sem hafa fylgt samningnum.
Við Evrópuvinir, Sjálfstæðismenn, þurfum reglulega að minna á það að við áttum stóran þátt í því að þjóðin steig þetta gæfuspor, að gerast aðildarríki að EES-samstarfinu. En samstarfið hefur auðvitað ekki verið hnökralaust. Það hefur ekki síst skýrst af því að við töpuðum um tíma þræðinum þegar kemur að hagsmunagæslu í samstarfinu. Það er nefnilega þannig að það gætir enginn okkar hagsmuna fyrir okkur. Það er því virkilega jákvætt að Sjálfstæðisflokkurinn hafi komið því til leiðar að við fórum aftur að gæta almennilega hagsmuna okkar í EES. Í þessu samstarfi eins og öðru erum við Íslendingar okkar eigin gæfu smiðir.
En hvað er þetta EES-samstarf? Samstarfið felur það í sér að við tökum upp hluta löggjafar ESB svo að íslensk fyrirtæki og neytendur búi við sama rétt og aðrir á EES-svæðinu og mikill meiri hluti atvinnurekenda og neytenda vildi sannarlega ekki vera án þess að tilheyra þessu svæði. Við getum hins vegar þurft að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og krefjast jafnvel aðlögunar og undanþága. Við höfum séð að árangur hefur náðst með virkri hagsmunagæslu fyrir Ísland í samstarfinu og við megum ekki slá slöku við.
Ég ætla að reyna að fylgja forskrift hæstv. utanríkisráðherra og ræða þetta mál á breiðum grunni; EES-samstarfið, samninginn, framkvæmdina og vandkvæðin við hana. Þess vegna vík ég aftur að þessum hnökrum. Þó nokkrir dómar hafa gengið hér á landi varðandi réttaráhrif samningsins og samspil landsréttar og EES-réttar. Fyrir um 20 árum varð síðan viðsnúningur í dómaframkvæmd hérlendis varðandi túlkun og beitingu EES-reglna. Breytt dómaframkvæmd hér leiddi svo til þess að eftirlitsstofnunin sem við komum á fót vegna EES-samningsins, ESA, hóf það ferli að fylgjast með því að framkvæmdin hér á EES-samningnum væri með réttum hætti. Það ferli endaði með rökstuddu áliti ESA um að dómaframkvæmd á Íslandi samræmdist ekki skuldbindingum okkar í EES-samningnum, skuldbindingum sem við höfum innleitt í íslensk lög.
Og hvað gerum við þá? Við sem erum sjálfstæð fullvalda þjóð sem ráðum sjálf okkar eigin örlögum, við sem erum okkar eigin gæfu smiðir. Ég er mikill stuðningsmaður EES-samstarfsins enda mikill Evrópusinni. Mér finnst samstarfið ekki gallalaust, þó að það nú væri í svona yfirgripsmiklu samstarfi við einhverjar mestu „besserwisser“-þjóðir í heimi. En mér finnst ekki spurning að kostirnir séu margfalt meiri en gallarnir, a.m.k. í dag, því að eins og við vitum er samstarfið lifandi og síbreytilegt og ég gæti þess vegna haft aðra skoðun á morgun, komi fram nýjar upplýsingar eða aðstæður sem breyta þessu mati mína.
Ég má til með að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir frumkvæðið og fyrir uppleggið. Þá er ég að vísa til áherslu hans á að við þingmenn eigum hér gott og gagnlegt samtal og að vinnu við tillögu til að leysa málið sé ekki lokið. Það er ekkert alltaf skilaboðin sem hæstv. ráðherrar koma með hingað inn í þingsal, eiginlega þvert á móti. Það hefur verið fróðlegt og að mestu gagnlegt að hlusta á hv. þingmenn í þessari umræðu. Mér finnst í fljótu bragði að við skiptumst svolítið í hópa eftir því hvort við viljum finna lausn á þessu framkvæmdarmáli eða hvort við finnum samstarfinu allt til foráttu og erum ekki í leit að lausnum sem styðja við það. Það er þá bara ágætt að það komi fram.
Ég er í þeim hópi sem vill gjarnan finna lausn á því að EES-samningurinn virki eins og skyldi á Íslandi. Ég skil að samningnum fylgja réttindi og skyldur og ég held reyndar að það sé mjög útbreitt vandamál að fólk telji sig eiga alls konar réttindi en gefi lítinn gaum að skyldum sínum. Skyldurnar geta verið þungbærar og við eigum aldrei að ganga lengra en við þurfum í því að íþyngja fólki og fyrirtækjum. Við eigum að snarhætta allri blýhúðun.
Í einföldu máli er mín afstaða því þessi: Ég vil að íslenskir borgarar og atvinnulíf búi við sömu réttindi, lifi og starfi í sama umhverfi og vinir þeirra í ESB. Og þvílík réttindi sem það eru, laus við alla verstu málaflokka ESB-samstarfsins. Gott dæmi um þessa nálgun mína er mál sem nú reynir á fyrir Hæstarétti Íslands, um fæðingarorlofsrétt íslenskrar konu, sem fleiri hv. þingmenn hafa minnst hér á. Það væri reyndar óskandi að þar kæmi fram niðurstaða sem hyrfi aftur til fyrri dómaframkvæmdar á Íslandi sem var að fullu í samræmi við EES-samninginn án þess að nokkur missti hjartaslög yfir því.
Virðulegi forseti. EES-samningurinn hefur á gildistímanum sannað gildi sitt, ekki síst á umbrotatímum. Rétturinn til að vinna, til menntunar og til að búa hvar sem er innan EES, loftferðasamningar, fjármálakerfi innri markaðarins, reiki, símafrelsi í Evrópu. Allt eru þetta dæmi um réttindi sem okkur þykja orðið sjálfsögð. Það er þess vegna mikilvægt að við ræðum EES-samninginn sem oftast og hvaða þýðingu hann hefur haft fyrir íslenskt samfélag og að við miðlum upplýsingum um hann til almennings. Þess vegna fagna ég þessari umræðu hér í dag og ég hef fulla trú á því að við berum gæfu til að finna lausn á þessu máli með einum eða öðrum hætti, okkar eigin gæfu smiðir.