154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

bókun 35 við EES-samninginn.

635. mál
[19:18]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Hér hafa verið fluttar fínar ræður þótt maður sé mismikið sammála því sem sagt er. En það er ekki hér til umræðu undir fundarstjórn forseta hjá mér heldur vil ég einfaldlega spyrja hvort umræðunni um þetta mál ljúki ekki hér og það fari síðan til utanríkismálanefndar. Ég er eitthvað að heyra hér að það sé búið að biðja um að umræðunni sé frestað. Það er takmörkuð umræða í umræðu um skýrslu þannig að ég ætla einfaldlega að spyrja hvort það sé ekki alveg ljóst að málið farið að umræðu lokinni núna strax til utanríkismálanefndar þannig að við getum hafið vinnu — nefndadagar eru að byrja — þannig að við getum farið í það að fara yfir þessa skýrslu.