154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

689. mál
[19:37]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Í þessu frumvarpi er m.a. fjallað um viðskipti yfir landamæri eða samstarf yfir landamæri eins og t.d. ef land sendir hingað tankskip fullt af koltvísýringi sem síðan er dælt niður í íslenskan berggrunn til að vera þar varanlega geymdur. Hæstv. ráðherra þekkir þær áhyggjur sem eru á alþjóðavísu af möguleikanum á tvítalningu í loftslagsbókhaldi viðtökuríkja og upprunaríkis en þær áhyggjur hafa nú eitthvað dofnað eftir síðustu loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna þar sem náðist svona skref í rétta átt í þessum málum. En hvað varðar stefnu Íslands þegar kemur að kolefnismarkaði og því sem snýr að 6. gr. Parísarsamningsins þá setti hæstv. ráðherra á laggirnar starfshóp í apríl á síðasta ári um kolefnismarkaði, sem átti að skila niðurstöðum núna í febrúar, fyrir tveimur vikum, um mánaðamótin. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvað líði störfum þess starfshóps. Þær niðurstöður væru áhugaverðar í samhengi þessa máls fyrst við fáum það hér aftur í hendurnar. Svo langar mig líka að spyrja varðandi þá viljayfirlýsingu sem fyrri ráðherra gerði varðandi svona tvíhliða samstarf við svissnesk stjórnvöld árið 2021, hver sé staða þess samstarfs og hvort viljayfirlýsingunni hafi verið fylgt eftir með einhverjum framhaldsskjölum, sem sagt hvort sé farið að hylla undir einhver frekari samstarfsverkefni.