hollustuhættir og mengunarvarnir.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir andsvarið. Stutta svarið við seinni spurningunni er nei. Því hefur ekki verið fylgt eftir af þeirri ástæðu sem hv. þingmaður vísaði til, ég tel mjög mikilvægt að við mótum okkur stefnu og áherslur þegar kemur að kolefnismörkuðum. Ég er mjög ánægður með að hv. þingmaður fylgist með því hvað er að gerast í ráðuneytinu, hann vísar til þess að það var settur á starfshópur til að fara sérstaklega yfir þau mál og átti að skila í febrúar. Málið er hins vegar það umfangsmikið að við höfum ákveðið að leggja aukna vinnu í það og niðurstöðu er ekki að vænta fyrr en á vormánuðum. En ég held að það sé mjög skynsamlegt að nefndin taki stöðumat á því og heyri aðeins í þeim aðilum sem þar starfa. Formaður hópsins er lögmaðurinn Jónas Fr. Jónsson og hópurinn hefur unnið sleitulaust. En þetta er risastórt mál og gríðarlegt hagsmunamál út frá öllum forsendum og áður en við gerum eitthvert samkomulag við önnur ríki þá tel ég mjög mikilvægt að við séum búin að móta okkar áherslur og stefnu hvað þetta varðar. Það eru mörg álitamál uppi sem mikilvægt er að ræða og ekki síst hér á hinu háa Alþingi þannig að stutta svarið varðandi viljayfirlýsinguna við svissnesk stjórnvöld er nei, því hefur ekki verið fylgt eftir. En það er mikill áhugi hjá svissneskum stjórnvöldum þegar að þessu kemur. Það eru miklir möguleikar í þessu fyrir Ísland en það snýr ekki bara að þessu máli eða þessum þætti máls sem hér er fjallað um í frumvarpinu. Ég held að það sé mjög skynsamlegt af hv. þingnefnd og þinginu líka að ræða þetta. En til að gera langa sögu stutta þá er málið það umfangsmikið að ég féllst fúslega á það að hópurinn fengi lengri tíma til að fara yfir málið.