154. löggjafarþing — 72. fundur,  13. feb. 2024.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

689. mál
[19:46]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Allt er þá þrennt er á væntanlega við um þetta frumvarp þar sem nú er í þriðja sinn reynt að ná að lögfesta tilskipun Evrópusambandsins 2009/31/EB. Fyrst var það reynt með samþykkt laga nr. 12/2021, síðan með frumvarpi sem meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar flutti og varð að lögum nr. 67/2022. Í bæði skiptin komst Eftirlitsstofnun EFTA að því að innleiðingin hefði ekki verið í fullu samræmi við tilskipunina og því erum við hér að ræða þriðju breytinguna á lögum til að innleiða þetta.

Ég veit ekki hvað maður kallar þetta í því umhverfi sem við höfum núna þar sem er verið að ræða einhverjar meintar gullhúðanir á evrópsku regluverki, hvað við köllum það þegar ráðuneyti reyna að tálga innleiðinguna það mikið niður að hún mistekst í tvígang. En það er ekki til að auka skilvirkni í lagasetningu að vera gerð afturreka ítrekað með innleiðingu.

Ekki náðist að ljúka afgreiðslu málsins á síðasta þingi, einfaldlega vegna þess að stærstu hagsmunaaðilar á sviði niðurdælingar koltvísýrings á Íslandi voru ósammála um efni málsins. Þar erum við að tala um að Orka náttúrunnar eða Orkuveita Reykjavíkur, móðurfélag Carbfix, hafði eina sýn á efnið en önnur orkufyrirtæki sem beita niðurdælingu á annan hátt, Landsvirkjun og HS Orka, höfðu enn aðra sýn og þarna á milli vorum við í þingnefndinni og ráðuneytið dálítið ráðþrota gagnvart því hvernig ætti að leiða þennan ágreining í jörð. Þingnefndin var alla vega ekki rétti vettvangurinn til þess. Ég er því ánægður með að ráðuneytið hafi tekið málið á hús og rætt við hagsmunaaðilana, sest greinilega bara niður í kringum eitt borð og fundið sameiginlegan skilning á því hvernig best sé að innleiða tilskipunina þannig að öll séu sátt. Ef satt reynist sem fram kemur í samráðskafla greinargerðarinnar, að fyrirtækin hafi einfaldlega verið ósátt við umfjöllun í greinargerð frumvarpsins en ekki efnisatriði málsins sjálfs, þá er þetta nú einhver einfaldasta lausn átaka sem hugsast getur og vonum að það standi þegar nefndin fer að fjalla um málið.

Mig langar hér örstutt að nefna þau álitaefni sem ég ræddi í andsvörum við ráðherra, bara til að geta dýpkað aðeins hvað ég átti við. Nú er staðan sú að í Parísarsamningnum er 6. gr. sem fjallar um ýmiss konar viðskipti með kolefni yfir landamæri eða ýmiss konar samstarf á sviði loftslagsmála líka yfir landamæri. Fyrir ári, þegar við stóðum hér í þingsal að ræða þetta, voru þau mál mjög mikið upp í loft og horfði ekki vel varðandi það að það næðist eitthvert almennilegt samkomulag milli aðildarríkja samnings Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál. Eitthvað lagaðist það nú á síðasta loftslagsþingi, þó svo að það sé enn nokkuð í land að það sé algerlega tryggt að t.d. tvíhliða samningar um loftslagsverkefni uppfylli allar forsendur til þess að það sé augljóst að þeir þjóni markmiði sínu. Þetta er í rauninni ágreiningur á alþjóðavísu sem er frosinn í bili. Hins vegar náðist að vinna nógu langt áfram á síðasta þingi til þess að hluti 6. gr. hefur virkjast. Það er farið að vinna verkefnið samkvæmt grein 6.2 sem snýst um tvíhliða verkefni á milli landa. Þar riðu á vaðið Sviss og Taíland. Sviss sem sagt gerir samstarfssamning við Taíland um að fjármagna uppbyggingu almenningssamgangna sem gangi fyrir grænni raforku, fasa þannig út jarðefnaeldsneyti í vegasamgöngum í Bangkok. En þó að þetta hafi gerst bara núna á síðustu vikum og mánuðum þá erum við strax komin í þá stöðu að það eru deilur um það hvort framtalning á loftslagsávinningi sé að lenda á réttum stöðum. Áhyggjur sem uppi hafa verið af tvítalningu í 6. gr. Parísarsamningsins eru því enn mjög lifandi.

Þetta er kannski sérstaklega áhugavert gagnvart Íslandi þar sem Sviss er hér aðili að tvíhliða viljayfirlýsingu. Sviss hefur skrifað undir samkomulag við Ísland um að leita leiða til að styrkja samstarf á sviði loftslagsmála. Hluti af því er vinna í kringum Climeworks, loftföngunar- og niðurdælingarstöðina uppi á Hellisheiði, svissneskt fyrirtæki í grunninn. Í þessari viljayfirlýsingu er jafnframt rætt um að þróa mögulega leiðir til að senda til Íslands koltvísýring frá Sviss til niðurdælingar í Coda-stöðinni sem Carbfix ætlar að koma upp í Straumsvík. Ef af þessu verður mun þetta regluverk sem við höfum hér til umræðu væntanlega ekki duga þar sem það er skýrast hvað varðar praktíska hluti varðandi niðurdælinguna sjálfa en hvað varðar orðsporsáhættu og tiltrú fólks á mótvægisaðgerðum í loftslagsmálum þá þarf að setja aðeins meira kjöt á beinin. Eins og deilurnar um ágæti svissneska verkefnisins í Taílandi sýna svo glögglega þá skiptir mjög miklu máli að gagnsæið sé aukið eins mikið á þessu sviði og hægt er. Þannig komum við í veg fyrir að tiltrú almennings laskist, að orðspor landsins á alþjóðavísu verði fyrir barðinu á þessu. Við þurfum að ræða það, sýnist mér, í samtali við starfshóp um markaði um kolefniseiningar sem hæstv. ráðherra skipaði í apríl á síðasta ári. Þó að þessi starfshópur hafi ekki skilað af sér enn er full ástæða til að skoða þau verk í tengslum við þetta frumvarp, hvort sem við tökum þær hugmyndir inn í þá vinnu eða væntum þess að fá frumvarp um millilandaviðskipti sérstaklega í hendurnar.

Fleira held ég að ég þurfi ekki að segja í þessum umgangi. Væntanlega munum við eiga frekari umræður um þetta í 2. umræðu að því gefnu að við fáum orkufyrirtækin ekki hvert upp á móti öðru í nefndinni aftur.