154. löggjafarþing — 73. fundur,  15. feb. 2024.

breyting á starfsáætlun.

[13:31]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill í upphafi þingfundar greina frá því að samkvæmt starfsáætlun Alþingis er nefndadagur í dag og funduðu nefndir fyrir hádegi. Í gær var hins vegar ákveðið að boða til þingfundar eftir hádegi í dag til að hægt væri að mæla fyrir eina dagskrármálinu, kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, ljúka við 1. umræðu um málið og koma því til nefndar. Samráð var haft við forsætisnefnd og formenn þingflokka varðandi þessa breytingu á starfsáætlun.