154. löggjafarþing — 73. fundur,  15. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[13:34]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Markmið frumvarpsins er að verja fjárhag og velferð íbúa í Grindavíkurbæ vegna þeirrar óvissu sem skapast hefur þar á undanförnum mánuðum vegna jarðhræringa og eldgosa. Þetta er merkilegt frumvarp fyrir ýmsar sakir; bæði eru aðstæðurnar án nokkurra fordæma og mér að vitandi hefur ríkið aldrei lagst í sambærilegt verkefni, a.m.k. ekki af þessari stærðargráðu. Við höfum þurft að huga að ótal þáttum og staðið frammi fyrir nýjum áskorunum sem kalla á vandvirkni á sama tíma og brýn þörf er fyrir það að allt gangi hratt fyrir sig. Ég tel að við höfum náð að feta góðan veg milli þessara sjónarmiða.

Í frumvarpinu er lagt til að einstaklingum, sem voru með lögheimili í Grindavík 10. nóvember síðastliðinn, verði boðið að selja félagi í eigu ríkisins íbúðarhúsnæði sitt. Miðað er við að kaupverð íbúða nemi 95% af brunabótamati að frádregnum veðskuldum. Lagt er til að möguleikinn til að selja húsnæði sitt standi Grindvíkingum til boða frá gildistöku laganna til 1. júlí nk.

Frumvarpið nær ekki til húsnæðis í eigu lögaðila en það mun þó gilda um íbúðarhúsnæði í eigu dánarbúa enda hafi það verið nýtt til heimilishalds. Heimilt verður að víkja frá skilyrði frumvarpsins um að seljandi hafi átt lögheimili í íbúðarhúsnæðinu ef tímabundnar aðstæður, svo sem nám, vinna eða annað, skýra skráningu á lögheimili annars staðar. Undir frumvarpið falla einnig hús sem metin hafa verið óviðgerðarhæf af Náttúruhamfaratryggingu Íslands og stofnunin hefur lokið bótauppgjöri vegna. Í þeim tilvikum dragast bætur frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands einnig frá kaupverði. Í tilviki húsa sem hafa brunnið vegna eldsumbrotanna býðst eigendum að afsala þeim til félagsins án endurgjalds gegn því að félagið eignist mögulega endurkröfu á Náttúruhamfaratryggingu Íslands vegna kostnaðar við niðurrif og förgun. Hús sem hafa að öllu leyti farið undir hraun falla ekki undir frumvarpið enda fást þau bætt af Náttúruhamfaratryggingu Íslands og eigendur þurfa ekki að sæta frádrætti frá bótagreiðslum vegna kostnaðar við niðurrif og förgun þeirra.

Í frumvarpinu er lagt er til að framkvæmd húsnæðiskaupanna og umsýsla þess eignasafns sem verður til verði í höndum sérstaks félags sem ákveðið hefur verið að fái heitið Fasteignafélagið Þórkatla. Nokkrar ákvarðanir sem félaginu verða faldar, svo sem hvort tilefni er til að víkja frá skilyrði um lögheimilisskráningu í Grindavík, eru matskenndar. Þær ákvarðanir verður unnt að kæra til úrskurðarnefndar náttúruhamfaratrygginga, en sú nefnd hefur verið starfandi um nokkurt skeið og hefur það meginhlutverk að úrskurða í ágreiningsmálum vegna ákvarðana Náttúruhamfaratryggingar Íslands.

Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Grindvíkingum bjóðist að eiga forgangsrétt að hinu selda húsnæði í tvö ár og að skilyrði hans verði nánar fjallað um í reglugerð. Ekki liggur fyrir hve margir íbúar munu koma til með að nýta sér það úrræði sem felst í frumvarpinu og er heildarkostnaður við verkefnið því óvissu háður. Komi til þess að allir sem uppfylla skilyrði um sölu taki þátt gæti kostnaðurinn orðið um 60 milljarðar króna. Þar af nema áhvílandi fasteignalán um 23 milljörðum króna.

Gert er ráð fyrir því að kaupin verði fjármögnuð með framlagi úr ríkissjóði og með samningum við lánveitendur um uppgjör og úrlausn áhvílandi veðskulda. Gert er ráð fyrir þeim möguleika að hluti af fjármögnun ríkissjóðs verði í formi framlags af eignum Náttúruhamfaratryggingar Íslands.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur átt í samskiptum við lánveitendur íbúðalána í Grindavík og óskað eftir aðkomu þeirra að heildarlausn á fjármögnun verkefnisins. Fyrir liggja drög að samkomulagi fjármála- og efnahagsráðuneytisins við viðskiptabankana og einn sparisjóð sem miðast við efni frumvarpsins eins og það er lagt fram. Samþykki stjórna fyrirtækjanna þarf til að unnt sé að ganga frá samkomulaginu og ég leyfi mér að vera bjartsýn á að það fái farsæla lendingu.

Við vinnslu frumvarpsins hafði ráðuneyti mitt samráð við þingmenn úr öllum þingflokkum á Alþingi. Samráðið var gagnlegt og hefur flýtt fyrir vinnslu málsins. Ég vil því nota tækifærið og þakka þingmönnum fyrir afar gott samstarf, upplýsingaskipti og annað á þessum tíma. Samstaða okkar allra hér inni er ákaflega mikilvæg á stundum sem þessum og ég vona að við berum gæfu til að halda henni áfram.

Í inngangsköflum frumvarpsins er fjallað um tilefni og nauðsyn þess að frumvarp þetta er lagt fram. Þar er einnig dregin upp lýsing á þeim aðstæðum sem skapast hafa í Grindavík á undanförnum mánuðum. Þessar aðstæður hafa reynt á marga í samfélaginu en enga á viðlíka hátt og íbúa Grindavíkur sem búa við óvissu sem ekki er hægt að una við. Styrkur Grindvíkinga og baráttuþrek þeirra á þessum ótrúlegu tímum er og á að vera okkur öllum hvatning.

Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda um síðustu helgi. Alls bárust 316 athugasemdir og umsagnir sem flestar voru frá Grindvíkingum. Í þeirri útgáfu frumvarpsins sem hér hefur verið lagt fram á Alþingi hefur í nokkrum atriðum verið tekið tillit til þessara ábendinga og önnur atriði útskýrð nánar og mig langar að nota þetta tækifæri til að færa Grindvíkingum og öðrum þakkir fyrir innsendar umsagnir.

Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umræðu að lokinni þessari umræðu.