154. löggjafarþing — 73. fundur,  15. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[14:42]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða hér frumvarp til laga um kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík, sem er alveg frábært og ég styð heils hugar. Ég er feginn að þetta er komið fram. Það eru tæp 50 ár síðan ég flutti til Grindavíkur og keypti mína fyrstu íbúð þar og nær 40 ár síðan ég flutti þaðan brott. En ég á vini þar og ég á mikið af ættingjum þar og þeir hafa haft samband við mig og fólk hefur verið að spyrja mig: Hvernig fer þetta fram? Verður tekið á þessu? Verður þetta svona? Dett ég á milli? Þetta eru margar spurningar og ein af þeim spurningum sem mér fannst svolítið frábær var: Hvað verður um eignirnar þegar þær eru komnar allar inn í eitthvert félag? Hver hugsar um þær? Hvernig verður tekið á þeim? Eins og einn benti á: Ég er búinn að leggja blóð, svita og tár í að byggja mitt einbýlishús, leggja allt undir, búnar að vera margar vinnustundir, og ég myndi vilja fá að eiga t.d. 5% í eigninni. Má ég það? Spáið í það. Sjónarmið hans var að ef hann myndi eiga 5% í eigninni þá myndi hann hugsa um hana, þá hefði hann rétt á að hugsa um hana og gera allar viðbætur á henni því að hans hugsun var sú að hann ætlaði að koma til baka. Það er fullt af fólki sem ætlar sér að koma til baka. Við verðum að taka tillit til þess, hvort sem fólk vill eiga 2,5%, 5% eða hvað, við verðum að gefa því tækifæri ef fólk vill þetta. Með því gæti fólk kannski tryggt sér að mega hugsa um viðkomandi eign af því að það er ákveðið í að nýta hana áfram.

Hér kemur fram að það er reiknað með 1–3% áhrifum á vísitölu. Við erum í hamfaraástandi núna og miðað við reynsluna af því hvernig hefur farið þegar ríkisstjórnin telur sig vera að meta hvort eitthvað hafi áhrif á verðbólguna — það hefur alltaf verið rangt — tel ég að við ættum að íhuga núna að taka vísitölu byggingar út úr verðtryggingunni eins og er, bara frysta það meðan þetta ástand er og meðan við erum að átta okkur á þessu. Hvort sem það hefði með hækkun á verðbólgunni að gera eða hvort það hefur stoppað lækkunina, vegna þess að það verður alltaf rangt gefið út frá þessum hamförum, þá á það ekki að geta íþyngt hvorki Grindvíkingum né öðrum landsþegnum, sérstaklega unga fólkinu okkar sem hefur verið að fjárfesta.

Síðan kom hv. þm. Guðbrandur Einarsson að því að við erum að tala um heimili. Hjúkrunarheimili eru heimili aldraðs fólks, viðkvæms fólks, fólks á síðasta æviskeiði sínu og ég segi fyrir mitt leyti að þar þurfum við að taka á málum. Hvernig er staðan hjá þessu fólki? Það slær mann þegar maður heyrir að fólk er í öngum sínum, búið að vera fast í sumarbústað síðan í október og sér fram á að það verði fast jafnvel fram til 1. maí og veit ekkert hvað skeður. Fólk er í hjólhýsum, maður heyrir um fólk sem er að flakka á milli herbergja, aldrað fólk. Við verðum líka að spá í það að þarna undir er fatlað fólk, öryrkjar, fólk sem er á framfærslu sveitarfélaga og annað, þetta er fólk sem er viðkvæmt. Við verðum að tryggja að það sé hugsað um þau, þau séu inn í dæminu og þó að þau séu kannski ekki inni í þessum pakka þá hlýtur það að vera næsta skref að við tökum á því og sjáum til þess að það verði enginn skilinn út undan, allir hafi tækifæri á að komast inn.

Í frumvarpinu er talað um hús í byggingum sem eru komin með vátryggingu, með brunatryggingu. En hvað ef einstaklingur eða einhver smiður hefur ætlað að byggja eitt eða tvö hús, hefur það að atvinnu sinni, og hann er kannski kominn með grunninn og jafnvel búinn að gera húsið þannig að það er lengra komið þó að það sé ekki alveg komin trygging á það — á hann að sitja eftir með óbætt tjón? Við getum ekki verið að leika okkur að lífi fólks og vinnu. Við verðum að hafa einhverja smá möguleika á að hafa sveigjanleika í þessu þannig að það sé hægt að taka á þessu og að við skiljum helst engan eftir. Ég vil helst að það verði enginn skilinn eftir en það gerist kannski bara í fullkomnum heimi, en við getum sagt sem fæstir.

Eins og ég segi, þetta er bara hið besta mál og ég ætla ekki að hafa mjög mörg orð um það, en ég ætla líka að benda á það að við verðum að taka á fleiri málum, eins og kom fram hjá hv. þm. Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur hérna á undan, sem var að tala um börnin og skólana. Síðustu tölur voru að þau voru í 68 skólum í 34 sveitarfélögum. Þetta er skelfilegt. Þetta er framtíð Grindavíkur, börnin. Ég ætla að ítreka það sem ég sagði hérna um daginn í störfum þingsins að maður sér hvað t.d. unglingarnir í Laugalækjarskóla eru ánægðir með að geta verið saman. Ég veit að það er fullt af börnum sem eru tvístruð um allt og sakna félaga sinna, vina og ættingja og við verðum einhvern veginn líka að leysa þau mál og taka á þeim. Við erum búin að ýta þessu að megninu til út af þinginu og við getum einbeitt okkur að því að reyna að leysa öll þessi mál sem varða Grindavík og við eigum að gera. Ég vona heitt og innilega að þeir sem telja sig vera að falla milli skips og bryggju eða fái ekki úrlausn sinna mála í þessu frumvarpi hafi samband og sendi til nefndarinnar og vonandi verður hægt að vinna úr þeim málum.