154. löggjafarþing — 73. fundur,  15. feb. 2024.

kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík.

704. mál
[14:48]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Ég fagna því að þetta frumvarp sé fram komið. Það er gríðarlega mikilvægt og auðvitað bara eitt skref í viðbót til að reyna að koma til móts við stöðu Grindvíkinga en er klárlega það stærsta hingað til, leyfi ég mér að segja. Það er fagnaðarefni að það skuli vera þverpólitísk samstaða og vinna sem býr að baki þessum frumvarpsdrögum sem nú fara inn í efnahags- og viðskiptanefnd. Ég hef sagt það hér í ræðustóli Alþingis að staðan í Grindavík og á Suðurnesjum er samfélagsleg, hún er fjárhagsleg, en hún er líka bundin því að gríðarleg óvissa ríkir á svæðinu. Forsætisráðherra nefndi það í umræðu hér í fyrradag að þetta væri eitt stærsta verkefni sem við sem samfélag höfum tekist á við á lýðveldistímanum og ég held að það sé rétt. Það er mikil ábyrgð fólgin í því fyrir Alþingi og stjórnvöld að taka þétt utan um Grindvíkinga, líka að huga að þeim þáttum sem snúa að vörnum gegn náttúruvá.

Við erum komin með frumvarp sem snýr að því að reyna eftir fremsta megni að koma til móts við sem flesta íbúa í Grindavík. Það er sannarlega markmiðið að enginn verði skilinn eftir í þeirri vegferð. Auðvitað þarf að setja ákveðin viðmið í svona vinnu. Það hefur verið ánægjulegt að sjá þá sem hafa fagnað þessu frumvarpi en ég skil mjög vel alla þá sem hafa áhyggjur. Því var mjög brýnt að fá málið inn í samráðsgátt og við munum taka og við höfum tekið nú þegar til greina þær athugasemdir sem þar hafa borist. Á vegum efnahags- og viðskiptanefndar verður einnig tækifæri til þess að koma með umsagnir og við munum fá helstu aðila til okkar til að reifa málið, enda er markmiðið að það verði eins vel úr garði gert og mögulegt er.

Heimilið okkar er yfirleitt stærsta og veigamesta fjárfesting fjölskyldunnar og aleigan okkar í mjög mörgum tilfellum. Það að koma til móts við Grindvíkinga og gefa þeim færi á því að hefja nýtt líf annars staðar, vonandi tímabundið ef náttúran leyfir, er gríðarlega stórt skref í rétta átt. En það hefur verið reifað hér í umræðunni að við þurfum að huga að eins mörgum íbúum og við getum. Það hefur verið nefnt hér að þeir einstaklingar sem eiga búseturétt í íbúðarhúsnæði í Grindavík séu í þannig stöðu að núverandi frumvarp taki ekki nógu vel utan um þann þátt. Ég held að það sé mikilvægt að efnahags- og viðskiptanefnd skoði það sérstaklega. Hvort það gerist innan þessa frumvarps eða í sérfrumvarpi á eftir að koma í ljós en ég skil þær áhyggjur og við munum reyna eftir fremsta megni að skoða hvernig er hægt að koma til móts við þá einstaklinga.

Það er rétt að hér er ekki verið að leggja fram frumvarp sem kemur til móts við lögaðila. Við höfum á undanförnum vikum og um langt skeið verið að leggja áherslu á fjölbreytt úrræði fyrir Grindvíkinga og reyna að koma til móts við samfélagið þar. Rekstrarstuðningur við fyrirtæki er einn partur af því en óvissan er svo sannarlega mikil og við reynum eftir fremsta megni að koma til móts við þarfir. Eins og hv. þm. Vilhjálmur Árnason benti á þá erum við líka að upplifa alls kyns breytingar á þeirri vegferð. Við erum að stíga hér stórt skref, hið veigameira á eftir að koma í ljós, hvernig við glímum við náttúruna og komum til móts við hana eftir því hvernig hún hegðar sér. Það gefur augaleið að það er mín von að við endurbyggjum Grindavík og fólk geti flutt aftur heim til sín. Mér finnst að við eigum aldrei að missa sjónar á því markmiði.

Þetta er gríðarleg áskorun og það er flókið að útbúa frumvarp sem þetta. Þá skiptir máli að samvinnan sé góð þvert á flokka, upplýsingagjöfin sé góð og við veitum þeim sem frumvarpið snýr að góðan aðgang að upplýsingum og tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri í þeirri vinnu. Styrkur íslensks samfélags er mikill. Við stöndum í stormi eins og staðan er núna hvað snýr að náttúruvá á Reykjanesskaga en ég er þess fullviss að við munum vinna vel úr þeirri stöðu sem blasir við okkur. Við komum til með að klára þetta frumvarp hér fljótt og vel en vegferðinni er ekki lokið. Við munum halda áfram í okkar vinnu hér á þingi og reyna eftir fremsta megni að mæta öllum áskorunum sem fram undan eru.

Ég vil sérstaklega ljúka máli mínu á að þakka bæjarfulltrúum í Grindavík og öllu því góða starfsfólki sem vinnur hjá sveitarfélaginu. Ég er þess fullviss að þau eru eftir fremsta megni að mæta öllum þeim röddum sem eru í Grindavík og hafa komið m.a. á öllum stigum upplýsingum til mín sem þingmanns kjördæmisins og stjórnvalda um sínar áherslur. Við munum án efa fá þau til skrafs og ráðagerða í nefndinni þegar frumvarpið verður komið þangað en ég vil líka bara þakka þeim sérstaklega fyrir og öllum þeim Grindvíkingum sem hafa nú þegar lagt inn umsagnir um málið og vænti þess að okkur takist að koma til móts við sem allra flesta í Grindavík hvað það varðar.

Frú forseti. Í þessum samráðshópi sitja einmitt þingmenn kjördæmisins og þeir sitja líka í efnahags- og viðskiptanefnd. Eins og hér hefur komið fram þá höfum við verið vakin og sofin yfir því að reyna að koma til móts við þá stöðu sem við erum búin að vera að ganga í gegnum á Suðurnesjum og í Grindavík. Allur þingheimur hefur verið einhuga um það að vinna hratt og vel að málefnum Grindvíkinga. 63 þingmenn hafa hér verið á grænu í öllum þeim málum sem þegar hafa komið fram og hafa verið kláruð. Ég er þess fullviss að sú samvinna í þeirri vegferð mun halda áfram og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja það að við léttum eins og mögulegt er áhyggjum af Grindvíkingum á þessum erfiða tíma.