tímabundið innra eftirlit á landamærum og PNR-samningar um farþegalista í flugvélum.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svarið. Hins vegar fékk ég reyndar ekki svar. Hún festist náttúrlega í þessari vangaveltu minni um valdagræðgi Sjálfstæðisflokksins. Ég var að spyrja um hvað væri verið að gera í sambandi við t.d. PNR-samningana til þess að við gætum fengið upplýsingar um farþegalista. Ég ætla bara aðeins að segja þetta: Það þýðir ekkert fyrir nokkurn einasta ráðherra að koma hér fram og segja það að ábyrgð Sjálfstæðisflokksins sé ekki 100% á málaflokknum. Það er 100% ábyrgð Sjálfstæðisflokksins á málaflokknum síðustu tíu árin og það að velja sér ranga bandamenn, að skríða í sæng með þeim sem þeir vita fyrir fram þegar þeir eru að gera sína stjórnarsáttmála að verða aldrei nema til vandræða, enda erum við í ófremdarástandi hér, ekki bara í þessum málaflokki, við bíðum nú eftir því að fá skammtað rafmagn á ljósaperurnar í leiðinni. En það skiptir máli, hæstv. ráðherra, að velja sér bandamenn við hæfi þannig að hlutirnir geti gengið hér (Forseti hringir.) eðlilega fyrir sig til heilla fyrir allt samfélagið.