Sjálfstæð rannsókn á aðdraganda slyssins í Grindavík í janúar sl.
Virðulegi forseti. Það er rétt að þessi rannsóknarnefnd almannavarna var lögð niður. Ráðherra þekkir ekki nákvæmlega tilurðina, af hverju það var eða hvort það hafi skort eitthvað á undirbúning eða aðbúnað þeirrar nefndar þannig að hún gæti sinnt hlutverki sínu eins og henni var ætlað. Alla vega var það niðurstaðan að nefndin var lögð niður. Ráðherra hefur ekki tekið ákvörðun um það enn sem komið er hvort þessi nefnd verði endurvakin. En ég minni á það að ráðherra hefur viðamiklar heimildir til að kalla eftir bæði ytri og innri rýni á þeim almannavarnaviðbrögðum sem byggð hafa verið úti á Reykjanesi.