afstaða Sjálfstæðisflokksins til útlendingamála og ráðstafanir varðandi fjölskyldusameiningu fólks frá Gaza.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Frá því að ég kom inn í ráðuneyti dómsmála hef ég haft málefni útlendinga sem forgangsmál og ég held að það hafi ekki farið fram hjá neinum. Þetta er eitt af fimm áherslumálum sem ég lagði upp með þegar ég steig inn í þetta ráðuneyti og ég tel að það skipti mjög miklu máli að það sé haldið af mikilli festu utan um þennan málaflokk. Eins og ég nefndi hér fyrr í dag tel ég að sá fjöldi sem hingað kemur í leit að vernd sé meiri heldur en innviðir íslensks samfélags ráða við, auk þess sem kostnaðurinn er orðinn verulegur.
Hv. þingmaður spyr um afstöðu flokksins til útlendingalaga. Ég held sömuleiðis að hv. þingmanni ætti að vera að fullu ljóst hver afstaða Sjálfstæðisflokksins er til þessa málaflokks, enda hafa þingmenn flokksins ekki farið í grafgötur með þá skoðun sína, hvorki síðustu daga, vikur, mánuði eða fyrri ár, og hefur Sjálfstæðisflokkurinn margítrekað reynt að koma fram breytingum á lögum um útlendinga til að mæta krefjandi stöðu í málaflokknum. Þetta er málaflokkur sem krefst þess. Hann er síkvikur og það þarf alltaf að gera breytingar á útlendingalögum á hverjum tíma. Það hafa löndin í kringum okkur gert og þannig vill sá ráðherra sem hér stendur einnig vinna.
Hvað varðar þær öryggisráðstafanir sem íslensk stjórnvöld hafa gert varðandi þann hóp sem bíður fjölskyldusameiningar á Gaza, þá hefur utanríkisráðherra sent lista með nöfnum til stjórnvalda í Egyptalandi og mér er ekki kunnugt um niðurstöðu þarlendra stjórnvalda á þeim lista.