afstaða Sjálfstæðisflokks til útlendingamála og ráðstafanir varðandi fjölskyldusameiningu fólks frá Gaza.
Virðulegi forseti. Eins og ég sagði í fyrra svari mínu hefur utanríkisráðherra fengið afhentan lista hjá Útlendingastofnun með nöfnum þeirra einstaklinga sem hafa fengið samþykkta fjölskyldusameiningu. Utanríkisráðherra hefur upplýst um það að hann hafi sent þennan lista til stjórnvalda í Egyptalandi og þau hafa hann í fórum sínum. Ég geri ráð fyrir því að þau hafi nú einhvers konar vinnulag með það, því að eins og hv. þingmaður nefnir þá hafa fleiri ríki sent lista með nöfnum ríkisborgara, dvalarleyfishafa eða aðstandenda sinna sem þau hafa reynt að koma yfir landamæri. Það er einhver tími liðinn síðan þessi listi barst þarlendum stjórnvöldum og hann er líklega þar í meðförum þeirra. Ég þekki ekki nákvæmlega hvernig það vinnulag er (Forseti hringir.) en geri ráð fyrir að það muni skýrast í mjög náinni framtíð (Forseti hringir.) hver niðurstaða egypskra stjórnvalda er hvað þetta varðar.