fjárheimildir til sjálfstætt starfandi háskóla eftir afnám skólagjalda.
Hæstv. forseti. Í liðinni viku boðaði hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að sjálfstætt starfandi háskólar á landinu hljóti óskert fjárframlag frá ríkinu til jafns við opinberu háskólana gegn afnámi skólagjalda. Um er að ræða þrjá háskóla: Háskólann í Reykjavík, Háskólann á Bifröst og Listaháskóla Íslands. Svo að það sé sagt strax í upphafi þá finnst mér andi þessarar hugmyndar góður og jákvætt sem hæstv. ráðherra hefur sagt, að það sé réttlætismál að greitt sé jafnt fyrir hvern nemanda af hálfu ríkisins, hvernig svo sem rekstrarformið er á skólanum sem viðkomandi sækir. Viðræður um sameiningu Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst standa yfir og óljóst hvað kemur út úr þeim samræðum. Í kjölfar tilkynningar hæstv. ráðherra lýsti Listaháskólinn því strax yfir að skólinn hygðist fella niður skólagjöld frá og með næstu haustönn. Háskólinn í Reykjavík hefur á hinn bóginn lýst því yfir að skólinn muni ekki taka tilboði hæstv. ráðherra. Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að með því að samþykkja hugmynd hæstv. ráðherra um aukið ríkisframlag gegn afnámi skólagjalda myndu rekstrartekjur skólans skerðast um 1.200 milljónir á ári. Þetta helgast af því að það er mishá greiðsla með hverjum nemanda miðað við hvaða nám viðkomandi stundar og listnám er í hæsta flokki á meðan nám í félagsvísindum er í þeim lægsta. Nú má búast við því að einhverjir þeirra skóla sem tækju þessu tilboði ráðherra myndu þurfa að stefna að því að fjölga nemendum til að dæmið gengi upp. Ef horft er t.d. til Háskólans á Bifröst er hann eingöngu með nám á sviði félagsvísinda sem er í lægsta greiðsluflokki, eins og sagt hefur verið, og ljóst að 100% greiðsla í þeim flokki myndi ekki duga til að mæta því gati sem myndaðist ef skólagjöld væru felld niður.
Í þessu samhengi vil ég velta upp þeirri spurningu til hæstv. ráðherra hvort áætlanir um að auka ekki við fjárheimildir háskólastigsins rími við þessar tillögur. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að dæmið gangi upp ef ekki stendur til að auka við fjárheimildir háskólastigsins þar sem búast má við umtalsverðri fjölgun nemenda?