fjárheimildir til sjálfstætt starfandi háskóla eftir afnám skólagjalda.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og líka reifun á málinu. Hann fór ágætlega yfir stöðu málsins. Í fyrsta lagi til að svara beint spurningunni þá er í fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar gerð sókn fyrir háskóla í landinu með innleiðingu á árangurstengdu fjármögnunarlíkani háskólanna sem beðið hefur verið eftir í talsvert mörg ár. Með því að breyta fjármögnunarlíkani háskólanna erum við að innleiða það hvernig við útdeilum fjármunum til háskólanna og þar kemur aukið fjármagn á næstu árum inn í fjármálaáætlun. Er gert ráð fyrir því, miðað við að tveir skólar af þremur sem eru einkareknir fari þessa leið, að fjármagn til annarra skóla skerðist ekki sem því nemur. Það er mikilvægt að taka það fram að um er að ræða nokkur hundruð milljónir, kostnaðurinn sem hlýst af þessu, af 40 milljörðum sem fara til háskólastigsins á ári hverju og er aukning í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Það er þannig sem þetta kemur inn á háskólastigið. Það er mikilvægt að mínu mati þegar við erum að horfa til Norðurlandanna, árangurs þeirra með háskóla með mismunandi rekstrarform, að sjá hvaða árangri þau hafa náð á háskólastiginu með fjármögnunarlíkönum sem eru núna að verða líkari okkar. Öll Norðurlöndin hafa tekið þessa ákvörðun og þar sjáum við að fleiri nemendur eru að skila sér í háskóla en hér á landi. Það má síðan ekki gleyma því að með fleiri nemendum inn í fjármagnið koma auknir fjármunir inn sem eru núna gæðamæling en ekki magndrifnir miðað við þær breytingar sem við vorum að gera á líkaninu.