154. löggjafarþing — 74. fundur, 19. feb. 2024.
fjárheimildir til sjálfstætt starfandi háskóla eftir afnám skólagjalda.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Háskólar á Íslandi hafa um árabil bent á að fjármögnun íslenskra háskóla stenst engan veginn samanburð við fjármögnun háskóla á hinum Norðurlöndunum og innan OECD. Hugsanlega má segja að kjarninn í rekstrarvanda íslenskra háskóla liggi einmitt í þessu. Skil ég þá hæstv. ráðherra rétt og hennar svar hér áðan, að það standi til að fjármagna íslenska háskóla með sama eða sambærilegum hætti og gert er á hinum Norðurlöndunum?