154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

fjárheimildir til sjálfstætt starfandi háskóla eftir afnám skólagjalda.

[15:31]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Það hafa lengi verið sett fram markmið um að nálgast fjármögnun háskólastigsins með þeim hætti að nálgast í fyrsta lagi meðaltal OECD-landanna og síðan til lengri tíma meðaltal Norðurlandanna. Við sjáum, og það er rétt hjá hv. þingmanni, að þar er fjármagnið meira ef við skoðum það á hvern nemanda en það er mikilvægt að skoða það líka í gömlu kerfi reiknilíkans sem búið var til árið 1999. Þá var erfitt fyrir skólana að vera í sókn, þá var borgað fyrir mjög magndrifið kerfi. Það var gott að setja eins marga nemendur og mögulegt var inn í skólana til að fá fjármagn en það sama var ekki að segja um hvort það myndi borga sig að láta þá útskrifast og klára námið. Ég tel að þegar við erum komin með árangurstengda fjármögnunarlíkanið sem var í samráðsgátt og við erum að leggja lokahönd á — þessi ákvörðun gagnvart sjálfstætt starfandi skólunum var ein af lokaákvörðunum í að klára það verkefni — þá geti skólarnir farið í sókn og sótt í auknar fjárheimildir sem þessi ríkisstjórn hefur forgangsraðað í þágu háskólanna til að komast nær meðaltali Norðurlandanna.