154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

áform stjórnvalda vegna aukins álags á lögreglu og almannavarnir í kjölfar náttúruhamfara.

[15:38]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið sem snertir auðvitað gríðarlega mikilvægt mál fyrir alla íbúa þessa lands. Ég held að það sé gott og blessað að mæta því sem við stöndum frammi fyrir með einhvers konar endurskoðun á löggjöf og öðru slíku. Við erum þá að sjá mögulega afurð af því einhvern tímann næsta vetur en við erum auðvitað búin að vera í þessu viðbragðsástandi núna í nokkur ár. Þau hafa verið nokkur eldgosin með tilheyrandi jarðhræringum og maður veltir því fyrir sér hvað menn ætla að gera gagnvart lögreglu sem nú þegar er orðin þreytt, hvað menn ætla að gera gagnvart björgunarsveitunum sem nú þegar eru orðnar þreyttar og hvers konar viðbragð við hugsum þar, bæði til skemmri og lengri tíma. Eins og við virðum nú starfsemi björgunarsveitanna gríðarmikils þá erum við auðvitað að treysta alveg ofboðslega mikið á störf sjálfboðaliða og það er ekki hægt að treysta á störf lúinna sjálfboðaliða til lengri tíma litið. Þannig að ég kannski vil þá þrengja fyrirspurnina: Hvað er verið að gera til skemmri tíma til að mæta þessu álagi næstu mánuði?