154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

brottvísun fólks úr landi og eftirlit með landamærum.

[15:42]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Nú er það þannig að ég get ekki tjáð mig um einstök mál og hef ekki upplýsingar um þetta einstaka mál sem hv. þingmaður nefnir hér nema bara úr fjölmiðlum. En því miður virðist það vera þannig að þetta sé ekki einsdæmi sem hv. þingmaðurinn nefnir hér. Við höfum heyrt það áður í fjölmiðlum að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi flutt í þvinguðum brottflutningi einstaklinga úr landinu og þeir hafi verið komnir aftur til landsins skömmu síðar. Þetta er sá veruleiki sem við búum við líka inni á Schengen-svæðinu þar sem er frjáls för fólks.

Það sem ég get sagt almennt um þessi mál og hef áður sagt er að það ætti að vera hægur vandi fyrir okkur Íslendinga að hafa fulla stjórn á landamærunum þar sem ég hugsa að yfir 95% allra þeirra sem sækja landið okkar heim komi í gegnum eina gátt, sem er flugvöllurinn í Keflavík. Samkvæmt 2. mgr. 17. gr. laga um landamæri er fyrirtæki sem annast flutning farþega til og frá landinu skylt að afhenda lögreglunni upplýsingar um farþega og áhöfn og þessi skylda nær til allra flugfélaga sem hingað fljúga. Hins vegar er í gildi innan ESB tilskipun um farþegaupplýsingar, svokölluð PNR-tilskipun. Þessi tilskipun, sem öll aðildarríki hafa leitt í lög sín, kveður á um að flugfélögum sé skylt að miðla upplýsingum um farþega og áhöfn til lögbærra yfirvalda í aðildarríkjum sambandsins. Tilskipun þessi kveður einnig sérstaklega á um hvernig yfirvöldum beri að meðhöndla og vinna farþegaupplýsingar auk þess sem sérstök ákvæði gilda um persónuvernd. Ísland er ekki aðili að þessari tilskipun og hefur því efni hennar ekki verið innleitt í íslensk lög. (Forseti hringir.) Það er bagalegt. Ég hef upplýst um það hér fyrr í dag að Íslendingar eiga nú (Forseti hringir.) í samningaviðræðum við Evrópusambandið um að innleiða þessa tilskipun og ég vænti þess að niðurstaða fáist í það núna á vormánuðum eða snemma í sumar.