154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

brottvísun fólks úr landi og eftirlit með landamærum.

[15:45]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna. Það er ljóst að það hefur átt sér stað á undanförnum árum mikil landkynning í Ísland – allt árið og að við eigum ferðamenn sem nýta þá innviði allt árið um kring sem hafa verið byggðir upp á Íslandi. Það krefst þess að við þurfum að efla millilandaflug í gegnum aðra flugvelli heldur en eingöngu Keflavíkurflugvöll. Ég fagna því og þeirri framsýn sem hefur verið á Norðurlandi eystra að nýta þann flugvöll betur og fá norður yfir heiðar erlend flugfélög til þess að bera ferðamenn þangað. Meiri umsvif flugfélaga kalla þá á meiri umsvif í alla starfsemi á flugvellinum og það kallar á að það verður að vera öruggt og gott landamæraeftirlit. Þetta er eitt af þeim málum sem ég hef lagt áherslu á í mínum störfum, að tryggja fjármuni til þess og þá einnig gagnvart skemmtiferðaskipum sem eru farin að sigla sömuleiðis hringinn í kringum landið.