fjáraukalög 2024.
Frú forseti. Það er alveg rétt að þessi aðgerð upp á tugi milljarða mun augljóslega hafa áhrif á ríkisfjármálin og þar af leiðandi á þann þátt í efnahagsmálum sem ríkisfjármálin hafa áhrif á. Stjórnvöld eru með það meginmarkmið og vonandi við sem flest hér og samfélagið allt að ná tökum á verðbólgu þannig að við sjáum hana minnka og í framhaldinu stýrivexti lækka. Við vorum með þrjú meginmarkmið í þessu máli. Í fyrsta lagi að gera Grindvíkingum kleift að fjárfesta á nýjum stað og eignast nýtt heimili. Númer tvö að lágmarka neikvæð áhrif á ríkisfjármálin og ríkissjóð og númer þrjú að fá fjármálastofnanir og lánveitendur á svæðinu með okkur að þessari heildarlausn. Þessi útfærsla uppfyllir þessi markmið en auðvitað kostar þetta sitt og við höfum tekið ákvörðun um það, sem betur fer, að þegar 1% landsmanna lendir í hremmingum og hamförum komi 99% til aðstoðar. Við sem stjórnvöld og fjárveitingavald stöndum frammi fyrir erfiðu verkefni þegar kemur að ríkisfjármálum. Staðreyndin er einfaldlega sú að við eyðum allt of miklum peningum. Við erum með miklar eignir hjá ríkinu sem ég tel eiga að vera forgangsatriði að losa okkur við. Við gætum einfaldað efnahagsreikning ríkisins mjög mikið. Við erum land sem greiðir eina hæstu skatta sem þekkjast þannig að við leysum ekki vandamál sem við stöndum frammi fyrir með því einu að hækka skatta enn frekar og ég er einfaldlega ekki með það á dagskrá að hækka skatta. En ég er sannarlega með það á dagskrá að fara betur með almannafé.