154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[16:04]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Að sjálfsögðu erum við öll sammála um að við þurfum að taka utan um Grindvíkinga eins og við mögulega getum. Þar er algerlega þverpólitískur stuðningur en ég er á sama stað og hv. þm. Eyjólfur Ármannsson, enda erum við bæði í Flokki fólksins. Það liggur á borðinu að við erum að greiða 117 milljarða í vexti á hverju einasta ári af lánum sem ríkissjóður er að glíma við. Hæstv. ráðherra kemur hér og segir: Hækka, hækka, hækka skatta. Við erum með fullri virðingu búin að leggja hér fram frumvarp skipti eftir skipti um að hækka bankaskattinn úr núll komma eitthvað prósentum, sem hæstv. fyrrverandi fjármálaráðherra, Bjarni Benediktsson, lækkaði hér á dögunum, í 0,838%, sem gæfi okkur nákvæmlega þessa 30 milljarða í ríkiskassann sem hæstv. fjármálaráðherra er að óska eftir heimildum fyrir núna til að auka enn frekar á lántöku ríkisins og stuðla að enn frekari og hærri skattgreiðslum. Það þýðir heldur ekki að koma hér upp og segja að það að hækka bankaskattinn á banka sem skiluðu yfir 100 milljörðum kr. í hreinan arð, hagnað á síðastliðnu ári myndi fara út í verðlagið, því að okkur hér á hinu háa Alþingi er í lófa lagið að tryggja að svo yrði aldrei. Okkur er í lófa lagið að tryggja að þetta lendi á þeirri ágætu græðgismaskínu bankakerfisins eins og hún leggur sig.

Hæstv. ráðherra talar ítrekað um að losa okkur við eignir. Að sjálfsögðu er Sjálfstæðisflokkurinn þar í sinni eiginhagsmunagæslu að koma vinum og vandamönnum á koppinn og koma öllum fyrirtækjum og gulleggjunum okkar á hendur fárra útvalinna vina og vandamanna. Að sjálfsögðu, það kemur ekkert á óvart. Það kemur hins vegar á óvart hvernig hægt er að slengja því í andlitið á þjóðinni núna að tímabært sé að selja banka sem skila hér tugum og núna yfir 100 milljörðum í arð, einn, tveir og þrír, af því að okkar sameiginlegu sjóðir eru að hagnast á því að reka og eiga þessa banka.