154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[16:08]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og benda hæstv. ráðherra á, ef hún veit það ekki, að við erum Alþingi Íslendinga og hún er hæstv. ráðherra og fjármálaráðherra Íslendinga en ekki landanna í kringum okkur. Mér gæti ekki verið meira sama um hvort önnur lönd eru að taka bankaskatt af sínu bankakerfi. Ég er eingöngu að benda á það að hér eru breið bök sem miklu frekar geta tekist á við áföll, frekar en að senda reikninginn alltaf á íslenskan almenning. Sælla minninga, hver voru aftur fyrstu viðbrögð ríkisstjórnarinnar núna þegar við vorum að byggja varnargarðana í kringum Svartsengi? Jú, að henda því beint í fangið á fasteignaeigendum, á fólkinu í landinu, með hækkandi fasteignasköttum. Þetta er alveg með hreinum ólíkindum. Þetta er rörsýn sem er eingöngu alltaf í eina átt, að ráðast á bognu bökin og beygja þau meira og segja svo hér: Ég vil ekki hækka skatta.