fjáraukalög 2024.
Forseti. Það er nú alltaf þannig að við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti en bregðast við alvarlegum atvikum á sama tíma. Þegar allt kemur til alls er hér reikningur upp á 30 milljarða mögulega. Við munum þurfa að greiða þann reikning einhvern veginn. Annaðhvort lendir hann á bara öllum heimilum landsins og atvinnulífinu líka sem verðbólga og hærri vextir eða það er ákveðið að setja einhvern skatt eða eitthvað svoleiðis á móti til að hafa það svona hnitmiðaðra hvernig á að endurgreiða þennan reikning. Við getum ekki hlaupist frá því að það er reikningur samt sem áður.
En óháð því þá finnst mér þetta frumvarp hérna áhugavert. Það er loksins komið fram frumvarp sem eyðir ákveðnum ótta, ákveðnu óöryggi hjá Grindvíkingum gagnvart því að hafa þak yfir höfuðið. Ég sé þetta alla vega þannig að þetta sé líklega fyrsta frumvarpið af nokkrum svipuðum þar sem það er í rauninni byrjað á fólkinu sem óttast það að hafa ekki þak yfir höfuðið næstu nótt þannig séð. Þess vegna langaði mig til þess að spyrja hæstv. ráðherra: Hvaða lágmarkstíma erum við að horfa upp á varðandi það að sé mögulega hægt að fara að byggja aftur eitthvað í Grindavík eða búa aftur í Grindavík? Mér finnst það skipta máli í heildarsamhengi þessa máls og þeirra mála sem við erum að tala um. Hvaða tímaramma erum við að tala um? Við höfum heyrt nefnilega um nokkra tímaramma en mig langar að heyra frá fjármálaráðherra hvaða sviðsmyndir er verið að vinna með.