154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[16:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Herra forseti. Þetta eru mjög góðar spurningar hjá hv. þingmanni sem ég hef því miður ekki svörin við en get þó sagt að það sem við erum að reyna að ná utan um með þessu frumvarpi er í raun að taka áhættu og óvissu frá íbúum í Grindavíkurbæ til ríkisins og við þurfum þá að bera þá áhættu og búa við þá óvissu að við vitum ekki hvað er raunhæft í Grindavík. Svo breytist þetta svo hratt. Nú er verið að tala um það í dag að íbúar megi ef þeir kjósa fara heim til sín. Hvort það er til mjög skamms tíma eða eitthvað lengri vitum við ekki. Hvar mun gjósa næst? Við vitum sirka að það mun gjósa aftur. Hvar það verður veit alla vega ekki sú sem hér stendur og ég held enginn. Hversu raunhæft er það þá að þau sem mega fara inn í Grindavík muni gera það? Það eru þá mismunandi hópar væntanlega. Ég held að það sé kannski síður þau sem eru með börn sem eru í skóla annars staðar á meðan ekki er alveg vitað hvernig undirlagið er í Grindavík varðandi það að fara út að leika. Ef það skýrist innan einhverra mánaða, kannski fyrir sumarið, með jákvæðum hætti þá geti það haft þau áhrif að fólk vilji frekar fara heim. Þannig að við vitum t.d. að í júlí — ég hef heyrt að ýmsum þykir júlí frekar snemmt, að þurfa að taka ákvörðun um hvort það ætli að selja sína fasteign. Það er eitthvað sem ég veit að nefndin er að skoða. Við setjum síðan tveggja ára markið í frumvarpinu en setjum bráðabirgðaákvæði um að það verði endurskoðað. Þannig að ég held að þetta sé verkefni sem við verðum að vera tilbúin að taka upp og endurskoða eftir því hvernig málum vindur fram. En þess vegna er forgangsrétturinn (Forseti hringir.) líka mikilvægur þannig að þetta sé ekki alveg eins stór ákvörðun og fólk geti átt kost á að fara aftur á sitt heimili.