fjáraukalög 2024.
Herra forseti. Með þessu fjáraukalagafrumvarpi og heimildum sem þar eru erum við í raun að teikna upp þá sýn að ríkið muni ásamt fjármálastofnunum sitja uppi með það tap, þannig að þessi pakki verður þá ekki stærri en þetta fjáraukalagafrumvarp segir til um. En það getur þá frekar orðið með ívilnandi hætti, sem væri þá bara jákvætt. Tveggja ára markið og bráðabirgðaákvæðið tel ég mikilvægt vegna þess að ég held og vona að fyrir þann tíma verði mjög margt af þessu sem hv. þingmaður nefnir orðið skýrara: Erum við á þeim stað að gera við það sem þarf að gera við? Hvað mun það kosta, sem er þá mögulega ný ákvörðun? En það sem snýr að þessu verkefni er þá afmarkað í fjáraukalagafrumvarpinu og frumvarpinu og það mun alla vega ekki stækka en mögulega verða minna.