154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[16:18]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég hef talað um það áður í þessari umræðu og líka Covid-umræðunni þegar hún var hérna að viðbrögð þingsins eða störf þingsins eru keimlík, finnst mér, í þessum tveimur atburðum. Það koma mál inn í þingið með mjög skömmum fyrirvara sem þarf að bregðast við. Það er tiltölulega ómögulegt að átta sig á heildarsamhengi hvers frumvarp fyrir sig, miðað við hvað fer að gerast næst eða jafnvel hvað hefur gerst áður. Það er í rauninni svona helsta umkvörtunarefni mitt hvað þingstörfin varðar. Ég fagna því mjög að þetta frumvarp sé komið fram, bæði lagafrumvarpið sem fer þarna inn í efnahags- og viðskiptanefnd og var mælt fyrir fyrir helgi og síðan fjáraukinn sem fylgir því hérna, því þetta er tvímælalaust eitt af þeim skrefum sem er nauðsynlegt að stíga til að eyða þeirri óvissu og ríkið er eini aðilinn sem getur eytt þeirri óvissu fyrst aðstæðurnar eru í rauninni þannig að náttúruhamfaratrygging nær ekki utan um þær aðstæður sem urðu þarna í Grindavík.

Samt finnst mér vanta upp á fyrirsjáanleikann. Það er enn þá mjög mörgum spurningum ósvarað. Ég skil að það sé erfitt að svara þeim en mér finnst það ekki vera reynt nægilega mikið. Þess vegna gerist það þegar maður heyrir útskýringar frá einhverjum jarðvísindamönnum eða afspurn af því hvað þar er verið að fjalla um eða andstæðar skoðanir að þá veit maður ekki alveg hverju maður á að trúa, hverju maður á að taka mark á á þann hátt að það sé gagnlegt til ákvarðanatöku.

Eitt af því sem ég hef heyrt og mig langar að vita hvort sé gott viðmið um þann tímaramma sem þetta ástand kemur til með að vara er þessi tveggja ára rammi sem er aðeins tæpt á í frumvarpinu, þ.e. að eftir að jarðhræringum lýkur þurfi jarðvegurinn u.þ.b. tvö ár til að sjatna. Hversu hárnákvæm sú dagsetning er, látum það liggja milli hluta, það er alla vega talið í þó nokkuð mörgum mánuðum, og hver viðmiðunarpunkturinn er þangað til að þeir mánuðir byrja að telja er væntanlega eftir að kvikuinnskotin o.s.frv. hætta, þannig að um leið og allt fer að vera með kyrrum kjörum þá sé hægt að fara að telja og ef ekkert gerist á tveimur árum þá getum við farið að gera við, án þess að eiga það á hættu í rauninni að viðgerðirnar eyðileggist einfaldlega í frekari jarðhræringum, bara upp á áhættu að gera.

Ef við erum að horfa upp á tveggja ára ramma eftir að jarðhræringum lýkur þá finnst mér það vera nauðsynlegar upplýsingar í rauninni fyrir landsmenn, fyrir þingið, fyrir Grindvíkinga sérstaklega, að vita að það er ekki að fara að vera nein starfsemi í Grindavík eins og var áður fyrr en í fyrsta lagi eftir þann tíma. Kannski verður hún takmörkuð á einhvern hátt, að einhver svæði séu aðeins öruggari en önnur og hægt að búa í þeim á einhvern hátt en það verður ekki skólastarf væntanlega, eða það verður alla vega að setja það upp á einhvern annan hátt og þess háttar. Það eru aðgerðir sem er kannski hægt að fara í svona til að lágmarka skaðann, ég veit það ekki. En hvað heildina varðar þá vantar enn þá, finnst mér, þennan fyrirsjáanleika.

Spurningarnar sem eru eftir þegar þetta frumvarp kemur fram eru t.d. hvað varðar atvinnuhúsnæði. Atvinnuhúsnæði sem hefur skemmst vegna náttúruhamfara fæst bætt frá náttúruhamfaratryggingu en ekki annað, þrátt fyrir að vera í rauninni á ónýtu svæði, alveg eins og forsendurnar eru fyrir það íbúðarhúsnæði sem er verið að kaupa upp hérna, þótt húsið sé ekki ónýtt þá er það samt á óbyggilegu svæði alla vega eins og er. Þá hugsar maður óhjákvæmilega að það hljóti að koma frumvarp seinna, að núna sé verið að bregðast við þeim sem geta ekki beðið, að fyrirtækin sem eru þarna í atvinnuhúsnæði séu ekki eitthvað þar sem þú þarft að passa upp á að fólk hafi þak yfir höfuðið á morgun og geti beðið aðeins lengur, þolinmæðin þar á bak við sé aðeins meiri. Það er verið að setja rekstrarstuðning til að halda ákveðinni þolinmæði hvað það varðar en þolinmæðin er búin hérna. Hérna eru bara uppkaup.

Hversu langan tíma hefur fólk til þess í rauninni að nýta þetta úrræði þangað til það getur byrjað að taka ákvörðun um að snúa til baka? Mér finnst vanta að það sé sagt skýrt og tekin í rauninni ákvörðun um það. Ef það er þannig að það er þessi tveggja ára rammi eftir að jarðhræringum lýkur þá held ég að það þurfi að segja það bara beint út. Það hefur ekki verið gert og þess vegna er ég að spyrja um það hérna, af því að það er tímarammi sem ég hef heyrt. Ef það er rangt, ef þetta er styttra, ef það þarf að gera þetta öðruvísi, þá þarf að segja það líka. Við þurfum einfaldlega að fá ákvörðun sem er hægt að nota til að byggja á framtíðaráætlanir þeirra sem þurfa að taka ákvörðun um það hvort þau eigi að selja húsið sitt eða ekki, af því að það bara skiptir máli ef fólk þarf að hugsa tvö ár fram í tímann eða fimm ár fram í tímann.

Ég fagna í fyrsta lagi, eins og ég segi, þessu frumvarpi. Þetta er tvímælalaust nauðsynlegt skref miðað við þær aðstæður sem við erum að glíma við. En þetta er svona hænuskref í áttina að því að fá einhverja heildarmynd af því hvað þarf í raun og veru að gerast til að byrja með til að það verði hægt að byggja upp aftur í Grindavík hvað tímarammann varðar, eða hvað? Ég held að þetta mál sé frekar auðvelt í umfjöllun þingsins og fjárlaganefndar, enda er þetta í rauninni fylgifrumvarp lagafrumvarps sem fer inn í efnahags- og viðskiptanefnd. Útfærslan á þessu er svo sem ekki það flókin. Eins og var kallað eftir hérna í andsvörum áðan við ráðherra þá skiptir þetta fjármagn alveg máli hagkerfislega séð. Svona innspýting hefur áhrif á efnahaginn í heild sinni, mismikil áhrif vissulega, en það þarf líka að taka ákvörðun um það hvernig á að koma til móts við þær efnahagsbreytingar sem verða vegna þessarar innspýtingar. Það er hækkun á húsnæðisverði. Það þarf að svara því. Það verða verðbólguáhrif af þessari ákvörðun. Hvernig á að svara því eða verður því bara vísað til Seðlabankans aftur eins og hefur í rauninni verið gert bara allt þetta kjörtímabil og síðasta kjörtímabil í rauninni líka, að ábyrgðinni á efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar á eigin útgjöldum er einfaldlega varpað frá þinginu, frá ríkisstjórninni? Það höfum við séð ítrekað.

Hin svokölluðu aðhaldssömu fjárlög á þessu ári, 2024, sem er tæknilega og fræðilega séð hægt að kalla aðhaldssöm af því að þau uppfylla einhver skilyrði um hlutfall til vergrar landsframleiðslu, sem er rosalega varlega skotið samt því að það er hægt að færa viðmiðin aðeins áður en maður kallar eitthvað aðhaldssamt og færa þau síðan til baka — ef maður skýtur of langt og færir þau síðan til baka þá kallar maður það aðhald því maður ætlaði aldrei að ná það langt hvort eð er, því að t.d. hvað varðar vinnumarkaðsmálin sem eru í gangi núna þá voru engar vinnumarkaðsaðgerðir í rauninni í fjárlögunum. Það er alveg það sem maður fékk tilfinningu fyrir, að þeim pakka var alveg haldið frá fjárlögum. Það eru einhverjar upphæðir í almenna varasjóðnum en hann er búinn að fara eins og hann fór út af þessu ástandi og mun þurfa fjármögnun fyrir það væntanlega líka að einhverju leyti, en sem sagt aðgerðirnar sem munu koma til að koma til móts við kröfur vinnumarkaðarins og atvinnulífsins vegna kjarasamninga munu eyða þessu svokallaða aðhaldi gjörsamlega, ekkert flókið við það, þannig að það er búið að vera pínu skrýtið ástand í efnahagsstjórninni þar sem tvímælalaust ef ríkisstjórnin meinti það að hún eigi ekki aðild að kjaraviðræðunum þá hefði hún bara átt að koma með sínar áherslur um það hvernig velferðarkerfið ætti að starfa, ætti að virka, ekki láta í rauninni samningaviðræður um það hvernig velferðarkerfið á að virka einhvern veginn í hendur þriðja aðila í kjarasamningum. Þetta spilar allt saman þegar við erum að koma og glíma við þessar aðstæður, svona neyðaraðstæður eins og koma hérna. Þegar það er verið að útvista t.d. efnahagsákvörðunum til bæði Seðlabanka og til í rauninni atvinnulífsins í kjaraviðræðunum, til hvers erum við þá hérna, þegar búið er að útvista öllum verkefnum, er bara einkavæðing Alþingis dálítið í gangi? Mér líður stundum dálítið þannig, merkilegt nokk. Við vitum ekki hvað hitt og þetta kostar þegar á að reka það, þegar það er síðan verið að reka það kostar það miklu meira en við bjuggumst við. Fyrirsjáanleikinn, sem ég kvarta undan í þessu frumvarpi og þessum aðstæðum sem við erum með í gangi, er vandamál. Það er mjög stórt vandamál og hefur verið hérna þó nokkuð lengi. Það er skortur á pólitískri forystu sem getur sagt okkur: Fyrirgefið, það er óvissa, en þrátt fyrir hana þá ætlum við að stíga þessi skref og þar með erum við búin að eyða óvissunni. Var það rétt ákvörðun? Það verður bara að koma í ljós, en þetta er það besta sem við getum gert núna. Þannig að stefna er ekki tekin. Það eru tekin hænuskref. Þetta er gott hænuskref en þetta er samt hænuskref.