Bráðabirgðaútgáfa.

154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[16:30]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Fyrsta þingmálið sem kom vegna jarðhræringanna og eldsumbrotanna í og við Grindavíkurbæ og þess óvissuástands sem íbúar bæjarins og svæðanna í kring hafa búið við undanfarna mánuði var, ef ég man rétt, frumvarpið sem laut að gerð varnargarða í kringum Svartsengi og Bláa lónið. Það frumvarp var keyrt í gegnum þingið á einum degi. Í því frumvarpi var skattahækkun á landsmenn. Á einum degi var keyrð í gegn skattahækkun á landsmenn til að fjármagna þá innviði og þessa varnargarða. Varnargarðarnir voru upp á 2,5–3 milljarða, og viti menn, í varasjóðnum voru 3,8 milljarðar sem hefði mátt nota. Nei, það var frekar farið í skattahækkun en að nota peninga sem voru þegar til. Ummæli fjármálaráðherra hér áðan um að skattahækkanir væru eitthvað sem hún væri algerlega á móti — það væri vert að hæstv. fjármálaráðherra rifjaði upp atkvæðagreiðslu sína og hvernig hún stóð að því máli þegar keyrð var í gegn skattahækkun á einum degi frá kl. 13.30 til kl. 23 um kvöldið, skattahækkun á húsnæðiseigendur til að fjármagna varnargarða í kringum Svartsengi og Bláa lónið. Það er nú hinn holi hljómur í skattalækkunarmöntru hæstv. fjármálaráðherra. Það gleymdist greinilega í fyrsta málinu sem laut að aðgerðum fyrir Grindvíkinga og svæðið í kring.

Þrívegis hefur komið til kvikuhlaups á svæðinu frá því að bærinn var rýmdur um miðjan nóvember á síðasta ári. Víða eru varasamar sprungur og skemmdir á mikilvægum innviðum og óvissa er um framvindu mála. Landris heldur áfram og jarðvísindamenn útiloka ekki frekari sprungumyndanir og eldgos. Ég tel alveg ljóst að Alþingi Íslendinga muni styðja við bakið á Grindvíkingum og við höfum efni á því. Til samanburðar má nefna að fyrir 50 árum, þegar eldgosið í Heimaey var, var Ísland miklu fátækara samfélag. Ísland er fimm sinnum ríkara í dag, eða rúmlega það, en árið 1973 og því getum við vel staðið að því að styðja Grindvíkinga í þeim eldsumbrotum sem hafa leitt til þess að þeir hafa þurft að flýja bæinn sinn. Öll vonum við að sjálfsögðu að bærinn verði áfram í byggð, en það er ekki málið hér. Hér er spurningin hvort við eigum að veita viðbótarheimild í 5. gr. vegna lántöku og endurlána auk heimildar í 6. gr. fjárlaga um stofnun eignaumsýslufélags og eiginfjárframlag til félagsins.

Það er fjármögnunin á aðgerðum til aðstoðar Grindvíkingum sem skiptir hér máli. Hvað gerir hæstv. fjármálaráðherra? Jú, tekur lán úti í heimi og dælir 30 milljörðum inn í íslenskt hagkerfi, í samfélagi sem er að reyna að berjast við verðbólgu sem í dag, samkvæmt síðustu mælingum, er 6,7%. Það er gert ráð fyrir að verðbólgan í ár verði 5,6%. Stýrivextir í landinu eru 9,25%. Seðlabankinn lækkaði ekki stýrivexti á síðasta vaxtaákvörðunardegi, m.a. vegna óvissunnar vegna Grindavíkur. Hann er sem sagt að bíða og sjá. Og viti menn, núna þegar ríkisstjórnin er búin að ákveða að dæla 30 milljörðum inn í íslenskt hagkerfi, sem mun auka þenslu og eftirspurn m.a. á húsnæðismarkaðnum, þá verður það ekki til að lækka verðbólguvæntingar eða verðbólgu í landinu. Þegar fólk flytur úr Grindavík og leitar að húsnæði annars staðar þá eykst að sjálfsögðu eftirspurn eftir húsnæði og það mun leiða til hækkana komi ekki framboð á móti. Það er gríðarlega mikilvægt að framboð verði stóraukið á húsnæði til að slá á verðbólgu og að fólk geti fengið húsnæði á hagstæðum kjörum. Íslenska ríkið og Alþingi á að styðja við bakið á Grindvíkingum, fjárveitingavaldið er hér.

Fjármögnunin er gagnrýniverð og mun leiða til verðbólgu. Meira að segja lánið upp á 30 milljarða þarf að borga. Hvernig verður þetta lán borgað á endanum? Jú, með skattlagningu. Skattborgararnir munu þurfa að borga þetta lán sem á að taka núna, allt að 30 milljarða. Hvernig hefði verið hægt að fjármagna þetta með öðrum hætti? Jú, það hefði verið hægt að gera með niðurskurði á fjárlögum, niðurskurði á fjárveitingum og skattahækkunum. Það hefði t.d. verið hægt að leggja niður ráðuneyti, sem var fjölgað um eitt og kosta fleiri milljarða. Það hefði verið ágætisbyrjun. Það hefði t.d. mátt hækka bankaskatt. Bankarnir skila hagnaði líklega upp á 100 milljarða kr. Opinberar tölur eru ekki enn þá komnar en mjög líklega verða þetta í kringum 100 milljarðar. Það er á tímum verðbólgu, á tímum þegar húsnæðiseigendur, íbúðareigendur sem eru með húsnæðislán, glíma við margföldun á afborgunum lána sinna, margföldun, og snjóhengja bíður eftir okkur þegar skilmálabreytingar verða á húsnæðislánum. Út af hverju? Verðbólgunni. Út af 9,25% stýrivöxtum og vegna þess að ríkisfjármálunum er ekki beitt markvisst í baráttunni gegn verðbólgunni. Það er ástæðan. Og núna ætlar ríkisstjórnin að dæla inn 30 milljörðum í íslenskt hagkerfi sem mun auka á verðbólgubálið. Það mun ekki draga úr því. Síðustu fjárlög þessa árs eru hlutlaus í baráttunni gegn verðbólgu, það liggur alveg klárt fyrir. Einn aðili er að berjast gegn verðbólgunni í landinu og það er Seðlabanki Íslands. Við skulum vona að kjarasamningar verði þannig að þeir muni leiða til lækkunar á verðbólgu. Þá kannski tekst verkalýðsfélögunum að knýja það fram að ríkisstjórnin geri eitthvað til að berjast gegn verðbólgunni. Hún er ekki að gera það í þessu máli. Hún hefði getað lagt niður eitt ráðuneyti, fækkað þeim og sparað pening þar og annars staðar, og líka hækkað skatta, t.d. veiðileyfagjald og bankaskatt, og látið breiðu bökin í samfélaginu taka þátt í kostnaðinum við stuðning við Grindvíkinga.

Það er það sem þetta snýst um, hvernig við ætlum að taka á þeim kostnaði og þeim áföllum sem íslenskt samfélag hefur orðið fyrir vegna eldsumbrotanna og eldgosanna við Grindavík. Ekki er nægjanlegt að fara út í heim og taka lán upp á 30 milljarða og halda því síðan fram í ræðustól, hæstv. ráðherra, að vera algjörlega á móti skattahækkunum. Það verður að borga þetta lán með sköttum. Það verður gert í framtíðinni, það er alveg klárt mál. Þetta er röng aðferðafræði, sérstaklega á tímum þegar 9,25% stýrivextir eru í landinu. Það er ekki þannig sem ríkisfjármálin eiga að vinna, þau eiga að vinna gegn verðbólgunni en ekki auka hana. Hér er verið að óska eftir heimild til að taka lán fyrir allt að 30 milljörðum kr., til viðbótar við þá lántöku sem gert er ráð fyrir í fjárlögum þessa árs sem er 200 milljarðar kr. Þetta eru ekki góð ríkisfjármál. Þetta er ekki góð stefna í ríkisfjármálum og sýnir það stefnuleysi sem er hjá ríkisstjórninni.

Annað atriði þar sem leita mætti peninga væri t.d. að taka á stefnuleysinu varðandi hælisleitendamál. Það eru 20 milljarðar í ár sem fara í þessi mál og 30, 40 milljarðar á undanförnum árum. Fyrir nokkrum árum voru útgjöld ríkissjóðs 500 milljónir vegna umsókna hælisleitenda. Þetta er algjörlega stjórnlaust.

Og talandi um, eins og hæstv. fjármálaráðherra nefndi, lönd sem við berum okkur saman við. Hvaða lönd berum við okkur saman við þegar kemur að eldsumbrotum og jarðhræringum? Ég veit ekki um neitt land í kringum okkur þar sem menn glíma við náttúruhamfarir af því tagi sem við erum að berjast við. Það er fjármögnunin sem skiptir öllu máli. Íslenskt samfélag hefur orðið fyrir áföllum vegna eldsumbrotanna á Reykjanesi og heilt bæjarfélag mun kannski fara í eyði. Það er mikill missir fyrir íslenskt samfélag sem verður fátækara fyrir vikið ef ekki verður byggt í Grindavík í framtíðinni. En það breytir því ekki að íslenskt samfélag og stjórnvöld verða að taka utan um Grindvíkinga og styðja þá í lífsbaráttunni eftir að þeir hafa þurft að flytja úr bænum sínum, yfirgefa bæinn sinn um miðjan nóvember síðastliðinn. Það eru hliðaráhrifin af fjármögnuninni sem eru að hafa áhrif og allir húsnæðiseigendur munu þurfa að greiða fyrir þau í formi hærri afborgana af lánum sínum. Það er líka skattur. Það má segja að það sé skattur ef einstaklingur sem borgaði kannski 120.000 kr. af húsnæðisláni sínu fer allt í einu að borga 300.000 kr. Það er skattur upp á 180.000 kr. á mánuði sem fer beint til bankanna. Það eru útgjöld líka, margföldun á afborgun húsnæðislána. Ef við erum að tala um hærri skatta á annað borð þá getum við orðað það svo að þessar hærri afborganir séu skattheimta í sjálfu sér.

Ég óska þess að ríkisstjórnin og fjármálaráðherra fari nú í alvöruaðgerðir, mótvægisaðgerðir, til að stemma stigu við verðbólgunni og ekki síst til að koma í veg fyrir það að aðstoð ríkissjóðs og stjórnvalda við Grindvíkinga leiði ekki til aukinnar verðbólgu, leiði ekki til hækkunar á húsnæðisverði sem fer síðan í neysluvísitöluna og eykur verðbólgu og fer þaðan í afborganir af lánum og síðan inn í verðtrygginguna með eignaupptökunni sem þar á sér stað. Þessa hringekju þarf að stoppa.

Við formaður Flokks fólksins erum nú að mæla fyrir frumvarpi hér á eftir um að taka húsnæðisliðinn út úr neysluvísitölunni, sem er mjög mikilvægt, enda er þetta ekki í öðrum ríkjum. Af hverju? Af því að húsnæðiskostnaður, ef einstaklingur kaupir húsnæði einu sinni eða tvisvar á ævinni, er fjárfesting. Að sjálfsögðu á að mæla neyslu í kringum húsnæði, eins og leigu, með öðrum hætti. En við erum með þetta núna varðandi húsnæðiskaup og fjárfestinguna í húsnæði sem mun leiða til þess að verðbólgan mun aukast enn þá meira.

Ég tel að það sé mikilvægt að halda vel utan um Grindvíkinga og styðja þá sem samfélag. Við höfum vel efni á því en við eigum ekki að gera það með þessari fjármögnun sem hér er lagt til, með lánsheimild upp á 30 milljarða kr. í erlendum lánum. Það er alveg klárt mál að við þurfum að borga þetta erlenda lán í framtíðinni með sköttum, hvernig sem við förum að því. Það er betra að reyna að koma í veg fyrir þessa lántöku eða hafa hana sem allra minnsta, með auknu aðhaldi í ríkisfjármálum og aukinni skattheimtu á þeim stöðum þar sem réttara er að gera það eins og ég hef tíundað í ræðu minni.