fjáraukalög 2024.
Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp fjármálaráðherra um allt að 30 milljarða lántöku í erlendri mynt til að mæta mögulegri fjárþörf vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Nú er það svo að það er algjör samstaða í þinginu um að hjálpa Grindvíkingum og sú samstaða varð t.d. allt að því áþreifanleg í samráðshópi þingmanna vegna uppkaupa húsnæðis í Grindavík sem ég sat í fyrir hönd Flokks fólksins. Þar var ákveðið að fara í uppkaup á eignum þeirra Grindvíkinga sem þess óska og ákveðið að miða við 95% af brunabótamati eignanna. Að sjálfsögðu þarf að fjármagna þau kaup með einhverjum hætti en það er bara ekki sama hvernig það er gert og forðast þarf með öllum ráðum að sú fjármögnun auki byrðar heimilanna í landinu með meiri verðbólgu og þeim auknu vaxtabyrðum sem alltaf virðist fylgja í kjölfarið sem eina úrræðið í baráttunni gegn henni.
Nú er það svo að heimilin sem mest skulda og minnst eiga hafa borið allar byrðarnar af baráttunni gegn verðbólgunni á meðan betur stödd heimili hafa sloppið gríðarlega létt frá þeim. Það er augljóslega ekki hægt að réttlæta það með neinum hætti því a.m.k. ættu heimilin að bera hlutfallslega svipaðan kostnað af verðbólgunni en þess í stað bera þau sem minnst hafa hann allan, á meðan efnuð og skuldlítil heimili sleppa alveg.
Auknar lántökur ríkissjóðs munu hafa bein áhrif á verðbólguna sem mun án tafar gefa Seðlabankanum fleiri ástæður til frekari vaxtahækkana. Það er lítið unnið ef hjálpa á Grindvíkingum með því að koma öðrum heimilum á vonarvöl og ég er algjörlega sannfærð um að eins mikið og Grindvíkingar þurfa á hjálp að halda þá eru þeir ekki að biðja um að kostnaðinum verði velt beint út í verðlagið.
Í frumvarpinu er því ekki slegið föstu hversu mikið þurfi að draga á þessa lánalínu en reynslan segir manni að það sé líklegra en ella að gengið verði á lánalínuna að fullu.
Það er hægt að vinna þetta með öðrum hætti. Það væri hægt að skattleggja með einhverjum hætti þann gríðarlega hagnað sem stórfyrirtæki hafa sýnt á undanförnum árum. Flokkur fólksins hefur ítrekað lagt fram frumvörp um hækkun bankaskatts. Ég hef sjálf lagt til í þrí- eða fjórgang, að hann verði hækkaður upp í það sem hann var fyrir lækkun, 0,376%, sem myndi gefa ríkissjóði a.m.k. 10,3 milljörðum meira í aðra hönd en 0,145% sem hann er í núna. Fyrir síðustu jól lagði Inga Sæland svo til að bankaskatturinn færi upp í 0,838% tímabundið eða þar til stýrivextir myndu lækka niður fyrir 5%, enda græða bankarnir mest á hækkun vaxtanna. Hækkun bankaskattsins upp í 0,838% myndi skila 30 milljörðum í auknar tekjur á einu ári. Sömu upphæð og nú stendur til að taka með erlendu láni. Bara með því væri búið að leysa þann vanda sem ríkissjóður stendur frammi fyrir vegna uppkaupa húsnæðis í Grindavík. Athugið að þrátt fyrir hækkunina sem formaður Flokks fólksins lagði til, væri bankaskatturinn samt vel undir 1%.
Alltaf þegar mælt er fyrir hækkun bankaskatts eru helstu rökin gegn hækkuninni þau að bankarnir myndu velta þessum kostnaði beint út til neytenda í formi hærri vaxta og þjónustugjalda, eins og andmælendur þessara frumvarpa beri hag neytenda svo svakalega fyrir brjósti. En öll dæmi og sá kaldi veruleiki sem blasir við sýna fram á að svo sé alls ekki. Enda er auðvelt að mótmæla þessum rökum.
Í fyrsta lagi er nóg að skoða sögu bankanna frá lækkun, þar sem álögur þeirra á neytendur hafa bara alls ekki lækkað, heldur þvert á móti hækkað í jöfnu hlutfalli við undanlátssemi stjórnvalda gagnvart þeim.
Í öðru lagi sýna hagnaðartölur bankanna fram á það sem ég hef ítrekað og oft bent á; að með vaxtahækkunum sínum sé Seðlabankinn að beina fjármunum heimilanna til bankanna í bílförmum á færibandi því að stóraukinn hagnaður þeirra er fyrst og fremst vegna vaxtatekna. Heimilin eiga þetta fé. Þó að það bæti þeim ekki skaðann er a.m.k. hægt að nota það til að koma í veg fyrir að meira verði af þeim tekið og að hægt verði á flutningalestinni til bankanna.
Í þriðja lagi má sjá það á vaxtahækkunum undanfarinna tveggja ára að bankarnir fara almennt ekki slíku offari í vaxtahækkunum og við höfum horft á undanfarið nema með skýrum tilmælum frá Seðlabankanum. Þeir eru ekki alveg jafn fljótir að hlýða tilmælum hans niður á við, þó það sé önnur saga, en að jafnaði eru breytilegir vextir þeirra á fasteignalánum um 2% hærri en stýrivextir Seðlabankans.
Í fjórða lagi hafa þjónustugjöld bankanna hverfandi áhrif á fjárhag heimilanna. Þar spila vextirnir stærsta hlutverkið. Þjónustugjöld bankanna hafa hins vegar lítil áhrif á fjárhag heimilanna. Með þessum orðum er ég ekki mæla bót öllum þeim matarholum sem þessi musteri Mammons hafa fundið til að ná fé af neytendum, ég er bara einfaldlega að benda á að þær eru ekkert í samanburði við vaxtabyrðina sem aukin verðbólga myndi hvetja Seðlabankann til að bjóða upp á.
Eingöngu þarf einfalda lagabreytingu til og ef einhversstaðar er fé að finna er það í bönkunum. Á neyðartímum er fáránlegt að halda áfram að hlífa þeim sem mest hafa á meðan endalaust er þjösnast á öðrum.
En það er fleira sem hægt er að gera til að fjármagna aðgerðir til stuðnings Grindavíkur annað en að fara í lántökur. Það mætti t.d. hækka veiðigjaldið. Það er einfalt að gera breytingar á veiðigjaldinu sem myndu skila ríkissjóði auknum tekjum. Hæglega mætti þannig auka tekjur ríkissjóð um hátt í 10 milljarða á ári. Annað sem hægt væri að gera væri að taka upp staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóð eins og Flokkur fólksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu um. Með því að breyta framvegis tilhögun skattheimtu vegna lífeyrissjóðssparnaðar má auka tekjur ríkissjóðs verulega. Í dag er lífeyrissjóðssparnaður skattlagður við úttekt en með því að skattleggja hann í staðinn við inngreiðslu myndu tekjur ríkissjóðs aukast verulega án þess að það hefði áhrif á ráðstöfunarfé almennings. Inngreiðslur í lífeyrissjóði árið 2022 námu 389 milljörðum kr. Miðað við 31,45% skatt, sem er lægsta skattþrepið í dag, myndi breytt aðferð skila ríkissjóði auknum tekjum sem nemur 91 milljarði kr. á ári. Með því að sækja skatttekjurnar í upphafi fær ríkissjóður þetta fé til ráðstöfunar og mér sýnist á öllu að ekki sé vanþörf á, jafnvel þótt hinar hrikalegu náttúruhamfarir á Reykjanesskaga hefðu ekki komið til.
Á móti kemur að ekki greiðist skattur þegar sá sparnaður er leystur út og því hefur breytingin ekki í för með sér hlutfallslega rýrnun á ávöxtun lífeyrissjóða. Eins og áður sagði myndi þessi ráðstöfun færa ríkissjóði um 90 milljarða kr. sem myndi óneitanlega hafa víðtækari áhrif á allt það sem ríkið hefur tök á að gera en ekki bara það sem viðkemur Grindavík núna.
Eitt af því sem þarf að huga að, hvort sem farið verður í lántökur eða aðrir möguleikar nýttir, sem ég vona svo sannarlega, eru áhrif alls þessa á húsnæðisverð. Eins og við vitum er hækkun húsnæðisverðs einn stærsti þátturinn í vísitölumælingum Seðlabankans og án húsnæðisliðar væri verðbólgan komin undir 5% og vextir væru þar með einnig mun lægri. Burt séð frá öllu öðru þá mun aukin eftirspurn kannski þúsund heimila hafa veruleg áhrif á eftirspurn á fasteignamarkaði og þar með fasteignaverð. Hægt er að fyrirbyggja slík áhrif með því að taka húsnæðisliðinn út úr vísitölu neysluverðs. Flokkur fólksins hefur lengi mælt fyrir því og formaður flokksins, Inga Sæland, mun einmitt mæla aftur fyrir því síðar í dag. En því miður ríkir ekki samstaða um þetta á Alþingi þó fleiri séu farnir að sjá ljósið.
Hins vegar má færa rök fyrir því að innflæði Grindvíkinga á húsnæðismarkaðinn sé þess eðlis að það eigi ekki að hafa áhrif á vísitöluna almennt, enda einstakur viðburður sem mætti kalla einskiptisaðgerð vegna utanaðkomandi óvæntra atburða. Hækkun húsnæðisverðs vegna þessa innflæðis og aðgerða ríkisstjórnarinnar til að auðvelda þeim fasteignakaup ætti ekki því alls ekki að hafa áhrif á vísitölu neysluverðs. Sú hækkun sem líklega verður vegna þessara atburða hefur lítið sem ekkert að gera með kostnaðinn við það að byggja nýtt húsnæði eða viðhalda gömlu. Auðvitað á að taka húsnæðisliðinn alfarið úr vísitölunni, en sé ekki hægt að ná því gegn verður a.m.k. að aftengja húsnæðisliðinn á meðan áhrif þeirra aðgerða sem varða Grindavík eru sem mest.
Eftir stendur að nú má ekki vera með rörsýn. Heimilin á Íslandi eru komin að þolmörkum sínum og mörg þeirra yfir þau. Það er samstaða um að hjálpa Grindvíkingum en sú samstaða má bara alls ekki breytast í einhvers konar kergju gagnvart þeim þegar fram líða stundir. Nú þarf að nýta sköpunarkraftinn sem býr í flokkunum á Alþingi, alþingismönnum, fjármálaráðuneytinu og starfsmönnum þess. Ég trúi því ekki fyrr en það verður að staðfestum veruleika og samþykkt hér á hinu háa Alþingi að ekki sé hægt að gera betur en fara bara beint í lántökur með tilheyrandi afleiðingum fyrir þjóðina alla en þó sérstaklega þau sem verst standa hér.
Í þessari stuttu ræðu hef ég lagt fram þrjár tillögur sem allar koma úr ranni Flokks fólksins og við höfum margoft lagt fram. Til upprifjunar eru þær þessar:
Hækkun bankaskatts, enda fáir sem hafa hagnast jafn gríðarlega á hinum svokölluðu aðgerðum gegn verðbólgunni og þeir sem fá fjármuni heimilanna til sín í bílförmum. Sú aðgerð ein og sér gæti fært ríkissjóði 30 milljarða á ári.
Hækkun veiðigjalds gæti fært ríkissjóði hátt í 10 milljarða á ári.
Staðgreiðsla við innborgun í lífeyrissjóði sem myndi færa ríkissjóði um 90 milljarða á ári.
Auk þess hef ég bent á nauðsyn þess að taka húsnæðisliðinn úr vísitölunni því sú hækkun sem líklega verður vegna þeirrar aukningar á eftirspurn sem innflæði Grindvíkinga á fasteignamarkaðinn hefur, er einsdæmi sem hefur lítið sem ekkert að gera með kostnað við að byggja upp nýtt húsnæði eða að viðhalda gömlu. Innflæðið, eins og ég sagði áðan, má kalla einskiptisaðgerð sem á því ekki hafa áhrif á vísitöluna, verðbólgu eða vaxtahækkanir sem allar hafa langvarandi áhrif.
Til að draga saman allt sem ég hef sagt er inntakið það að fjármögnun úrræða fyrir Grindvíkinga megi ekki hafa áhrif á afkomu heimilanna í landinu sem mörg hver eru komin á ystu nöf. Það má ekki ýta þeim fram af henni. Þau eru ekki aflögufær. Á Íslandi eru til miklir fjármunir. Þeir eru bara fastir í girðingum hinna útvöldu. Við þurfum að ná í þá því að þeir koma frá fólkinu í landinu og tíminn til að ná í þá er núna.