154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

fjáraukalög 2024.

717. mál
[17:06]
Horfa

Kári Gautason (Vg):

Virðulegur forseti. Við ræðum hérna frumvarp til fjáraukalaga, önnur fjáraukalög þessa árs, en bæði frumvörpin koma til vegna jarðhræringanna og hamfaranna við Grindavík. Þetta frumvarp er til þess að fjármagna uppkaup á húsnæði eins og mælt var fyrir um í síðustu viku. Ég held að það sé ágætlega um þetta búið og skiljanlegt að þetta sé gert með þessum hætti, að taka lán, þar sem við erum inni á miðju ári og kannski snúið að ætla að fara að ráðast í tekjuöflun eða niðurskurð til að greiða fyrir þetta inni á miðju ári.

Ástæðan fyrir því að ég kveð mér hljóðs í þessu máli er kannski aðeins önnur en hjá þeim sem komu hér á undan mér. Ég held að það sé búið að fara ágætlega yfir frumvarpið sjálft, ég held að þetta sé mjög skynsamlega sett upp, en við búum í hættulegu landi þar sem er mikil náttúruvá. Í gegnum söguna, þegar það hafa orðið náttúruhamfarir, hafa kerfin okkar hér á Íslandi orðið minna brothætt. Eftir eldgosið í Vestmannaeyjum var komið á viðlagasjóði, eftir snjóflóð kom ofanflóðasjóður og eitt og annað til að takast á við bresti sem hafa komið upp. Núna fyrir jól voru sett á forvarnagjöld til tiltekins tíma til að koma til móts við kostnað við að koma upp varnargörðum til að vernda mikilvæga innviði. Ég held að það sé kannski ástæða til þess á einhverjum tímapunkti, þegar við förum að draga lærdóm af þessari atburðarás sem við erum í miðri núna, að skoða hvort það sé ástæða til að koma einhverju slíku gjaldi á til frambúðar til að byggja upp þanþol í okkar innviðum til að geta tekist á við þessar áskoranir eins og núna. Náttúruvá á Íslandi er ýmiss konar og hún er viðvarandi og verður alltaf. Svo fékk ég í jólagjöf frá góðum manni kirkjuannála 1400–1800 og hef verið að dunda mér við að lesa þá og það er eiginlega endalaus frásögn af náttúruvá og hörmungum. Núna í okkar tæknivædda og ríka samfélagi getum við tekist á við ótrúlegustu hluti. Það var verið að nefna hérna kostnað í kerfinu vegna þess að fólk sé að leita hér hælis en á 19. öld, árið 1875, var mikið öskugos í Öskju og hundruð Íslendinga á Norðausturlandi fluttu úr landi þegar bæir þeirra fóru á kaf í ösku og það var ekkert net til að grípa þá.

Önnur tegund af náttúruvá eru flóð. Nú er sjávarborð að hækka vegna loftslagsbreytinga. Básendaflóðið 1799 lagði í rúst þorpið Básenda sem aldrei var byggt upp aftur og fjölda þorpa á Suðvesturlandi og braut skip og fólk drukknaði. Flóðavarnir eru eitthvað sem við verðum að taka alvarlega, ekki síður en að byggja upp aðra okkar innviði þannig að þeir þoli þá náttúruvá sem er, líka flóðavarnir og slíkt. Ég held að það sé alveg ástæða til þess að við reynum að læra af þessu ástandi sem nú er og að við gerum okkur betur búin til þess að takast á við þessar áskoranir því við getum það alveg og höfum gert það áður þegar náttúruhamfarir hafa riðið yfir.

Svo vil ég kannski í lokin nefna það, af því að hér var verið að nefna tímann, þessi tvö ár, að ég las grein eftir jarðvísindamann í nýlegu hefti af Heimildinni þar sem var sagt að sigdalur hefði aldrei myndast í bæ áður þannig að það væri kannski ekki mikil reynsla af því, menn vita ekki hvað gerist við mannvirki þegar sigdalur myndast í bæ. Hugsanlega þarf að velta því fyrir sér, varðandi þessi tímamörk, hvað það getur tekið langan tíma að fá fullvissu um svona lagað. — En fleira var það ekki í þessari atrennu.