154. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2024.

lögreglulög.

707. mál
[18:09]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (andsvar):

Forseti. Takk fyrir þessa spurningu og tækifæri til þess að svara skýrt, út af því að ég held að við séum að byrja á vitlausum enda. Það er vandinn í hnotskurn. Við eigum að byrja á því að tryggja að það sé raunverulegt sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglunnar. Svo getum við farið að ræða það hvort við eigum og hvort þörf sé á því að veita auknar heimildir. Það getur vel verið að svarið við þeirri spurningu verði já, að þess þurfi, og ég er algerlega opin fyrir því. En eins og staðan er núna þá hefur lögreglan víðtækar heimildir ef það er grunur. Ef grunur er um glæp þá hefur hún heimildir. Mér finnst það skipta ótrúlega miklu máli og við Píratar höfum talað fyrir því lengi, komið fram með frumvarp og annað um að það þurfi að hafa sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu, og lögreglan hefur sjálf talað um það að hún vill að þetta eftirlit sé sterkt og gott. Frá þessari nefnd um eftirlit með störfum lögreglu hafa líka komið upplýsingar um að hún telji sig ekki vera að fá þær upplýsingar og þau gögn sem hún þarf og hún hafi ekki þær valdheimildir sem þarf til að hafa þetta eftirlit með lögreglunni. Þetta er því eitthvað sem mér finnst við þurfa að skoða vel og skiptir gríðarlega miklu máli að gera það áður en við förum að tala um að auka valdheimildir lögreglunnar.