154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

störf þingsins.

[13:34]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Þrjár af hverjum fjórum íslenskum konum hafa fengið kynferðislegt efni sent til sín óumbeðið og þar ber auðvitað typpamyndirnar hæst. Hlutfallið er ívið hærra hjá yngri konum og stúlkum samkvæmt nýrri rannsókn sem samtökin NORDREF kynntu á ráðstefnu um stafrænt kynferðisofbeldi í gær. Tæplega 60% þeirra sem beitt hafa stafrænu ofbeldi eru á aldrinum 11–29 ára samkvæmt könnun sem Stígamót unnu á síðasta ári. Þá er helmingur brotaþola stafræns kynferðisofbeldis 17 ára eða yngri. Þegar skoðað er hverjir það eru sem senda kynferðislegt efni óumbeðið kemur í ljós að 60% sendenda eru ótengd þolanda. Þetta snýst hins vegar við þegar skoðað er stafrænt kynferðisofbeldi sem felst í því að birta kynferðislegar myndir af þolanda. Þá eru gerendur oftast einhverjir sem þolandi þekkir, mjög oft aðili sem þolandi var með í sambúð eða sambandi. Gerandi þarf ekki einu sinni lengur að eiga myndir af þolanda nöktum til þess að geta dreift særandi efni. Í dag tekur það örfáar sekúndur að nýta gervigreindarlausnir sem eru ókeypis á netinu til að breyta mynd af þolanda í fullum klæðum í sannfærandi nektarmynd. Fyrir hv. þingmenn hér inni er vert að minnast á það að í danska hluta rannsóknar NORDREF kom fram að algengt væri að kjörnir fulltrúar yrðu fyrir slíkum árásum. Það skortir jákvæðar karlkyns fyrirmyndir ungra drengja og manna en enginn skortur virðist vera á neikvæðum fyrirmyndum á samfélagsmiðlum. Það þarf að taka samtalið við unga drengi og menn í skólum, á vinnustöðum og á heimilum strax og þannig snúa við þessari hættulegu þróun.