154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

störf þingsins.

[13:41]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Gaza-ströndin er rústir einar. 1,5 milljónir flóttamanna eru nú samankomnar í Rafah og það er þéttbýlasta svæði í heimi. Þegar þetta fólk reynir að ná sér í mat í þau skipti sem mataraðstoð og neyðaraðstoð kemst í gegnum landamærin skjóta ísraelskar leyniskyttur það niður; börn, ungmenni, fullorðið fólk. Þetta er staðan og á þetta höfum við horft svo að segja aðgerðalaus í fjóra mánuði. A.m.k. 29.000 manns liggja í valnum, 70% þeirra börn og konur, eins og við öll vitum. Við vitum ekki hversu mörg lík er að finna í rústunum af Gaza. Þau gætu skipt þúsundum. Mataraðstoðin berst ekki inn, neyðaraðstoðin ekki heldur. Spítalarnir eru vettvangur átaka. Ég velti fyrir mér hvaða framtíð bíði barna og ungmenna á þessu svæði. Helmingur íbúa á Gaza eru börn og ungmenni. Tugþúsundir þeirra eru nú örkumla, aflimaðar eða í þannig áfalli að það mun marka þau fyrir lífstíð. Hungursneyð blasir við og það eru börn sem fara verst út úr hungursneyð. Hér heima hefur utanríkisráðuneytið staðið fyrir einhvers konar sýndarviðbragði og sent fólk til að reyna að koma þeim sem hafa fengið dvalarleyfi vegna fjölskyldna sinna á Íslandi til aðstoðar. Það hefur ekki tekist. Almennir borgarar hafa stigið þar inn og sinnt verkefninu af miklum sóma án þess í raun að hafa nokkra stöðu til þess. Ég ætla að fullyrða það hér, frú forseti, að viðbrögð utanríkisráðherra — hæstvirts, verð ég víst að segja — verða okkur sem landi og þjóð til ævarandi skammar.