störf þingsins.
Forseti. Það er ánægjulegt að fólk sé að vakna til lífsins í málefnum útlendinga á Íslandi en kannski síður ánægjulegt að fólk virðist vera að vakna upp við vondan draum og sér bara einhver vandamál. Píratar eru búnir að vera með augun opin í þessum málaflokki í langan tíma. Það má t.d. rifja upp síðast þegar útlendingalögum var breytt hérna á þingi að Píratar voru eini flokkurinn sem benti á að lögin sköpuðu ný vandamál í staðinn fyrir að leysa úr þeim áskorunum sem ríkisstjórnin var ekki að ná að leysa. Við stöndum hins vegar frammi fyrir því að fólk er ekki sammála um hver vandinn sé. Stjórnarliðar æpa: Séríslenskar reglur. Samfylkingin segir: Engin atvinnustefna. Viðreisn segir: Skortur á samstöðu. Miðflokkurinn segir að það vanti löglega leið, og ég hef ekki hugmynd um stefnu Flokks fólksins í þessum málum.
Það er rétt að það er engin atvinnustefna. Það er rétt að löglega leiðin er gjörsamlega ófær fyrir fólk utan EES. Það er rétt að það er skortur á samstöðu. Píratar eru búnir að segja þetta lengi. Það er hins vegar ekki rétt að vandamálið sé séríslenskar reglur. Ástæðan fyrir því að stjórnarliðar reyna ítrekað að benda á lögin og reglurnar er að þau vilja fela séríslensku ákvarðanirnar sem ráðherrar þeirra hafa tekið á undanförnum áratug, sem hafa leitt til ástandsins, sem núna er kallað stjórnlaust af sumum. Lögin og reglurnar eru ekki ástæðan fyrir því að kostnaðurinn í málaflokknum er jafn hár og raun ber vitni. Séríslenskar ákvarðanir eru vandamálið. Á heildina litið er það stefna ríkisstjórnarinnar að neita fólki um vernd ef það er mögulega hægt. Það er helsta orsökin fyrir kostnaðinum. Það hafa verið teknar margar rangar ákvarðanir í þessum málaflokki á undanförnum árum. Sjálfstæðisflokkurinn er hins vegar á hröðum flótta frá þeim mistökum núna með tilheyrandi kostnaði. Þau vilja ekki að fólk viti að ábyrgðin á þeirra ákvörðunum er einmitt þeirra, sem er mjög merkilegt því að þau kenna lögunum um. Ábyrgðarflóttinn hérna er algjör.