störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar til að lesa bókun stjórnar Sambands sveitarfélaga á Suðurlandi um þá alvarlegu stöðu sem komin er upp varðandi heimavist fyrir nemendur í FSu, með leyfi forseta:
„Stjórn SASS skorar á mennta- og barnamálaráðherra að beita sér tafarlaust fyrir því að óvissu vegna heimavistar við Fjölbrautaskóla Suðurlands verði eytt hið allra fyrsta. Samkvæmt upplýsingum frá skólastjórnendum þá rennur samningur um núverandi húsnæði heimavistarinnar út á vordögum 2024 og engar ráðstafanir hafa verið gerðar til að tryggja nemendum sem þess þurfa húsnæðisúrræði fyrir næsta skólaár.
Það markaði tímamót þegar samningar náðust um rekstur heimavistarinnar á haustdögum 2020 eftir nokkurra ára tímabil þar sem engin húsnæðisúrræði voru til staðar. Nýtingin á heimavistinni hefur verið mjög góð og það sætir því furðu að ríkið skuli ekki ganga frá samningum um áframhaldandi rekstur hennar þegar fyrir liggur að tilboð barst frá núverandi rekstraraðila.
Heimavist við skólann er lykilatriði í því að tryggja jafnrétti til náms á starfssvæði skólans og því með öllu óviðunandi að ríkið skuli bjóða ungmennum og fjölskyldum þeirra upp á þá óvissu sem nú er uppi.“
Virðulegi forseti. Sveitarfélögin á svæðinu hafa tekið undir þessa bókun hvert á fætur öðru. Við hljótum öll að vera meðvituð um það að heimavist ætti alltaf að vera til staðar við skóla sem þjónar jafn stóru svæði og FSu gerir. Því er undarlegt að setja málið í slíka óvissu eins og SASS lýsir svo vel í sinni bókun. Ég vil því nota tækifærið og hvetja hæstv. ráðherra málaflokksins til að bretta nú upp ermarnar og hvetja hann til að klára þetta svo að sómi sé að fyrir íbúa svæðisins en ekki síst fyrir þau ungmenni sem þurfa um langan veg að fara til að sækja sér menntun.