154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

störf þingsins.

[13:56]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Frú forseti. Hefur rússíbanahagkerfi áhrif á heimilin í landinu? Svarið er augljóst, en á Íslandi hefur kaupmáttur meðallauna sveiflast fjórum sinnum meira síðastliðna tvo áratugi en innan annarra OECD-landa. Glíman við verðbólgu og ógnarháa íslenska vexti er mikilvægasta hagsmunamál fjölskyldna hér á landi. Við förum hærra upp í rússíbananum og erum í frjálsu falli mun lengur en annars staðar. Þessi óstöðugleiki er mikill óvinur heimilisbókhaldsins. Þessi nagandi óvissa fyrir fjölskyldurnar í landinu, t.d. fólkið sem nýlega keypti fasteign, er með námslán og er á því æviskeiði að útgjöld heimilis eru há, m.a. vegna barna. Þetta er millistéttin á Íslandi, fólk sem finnur rækilega fyrir ástandinu í dag.

Á Íslandi greiðir þriðjungur þjóðarinnar um 70% skatta og gjalda. Í þessum hópi er meginþorri háskólamenntaðra, fólk sem gjarnan er með húsnæðislán og námslán og myndin sem teiknast upp er að millistéttin á Íslandi greiðir háa skatta, finnur mjög fyrir vaxtahækkunum og því að það er dýrt að reka heimili á Íslandi. Vextir eru enda rúmlega tvöfaldir á við nágrannalönd.

Við stærum okkur af því að jöfnuður á Íslandi sé mikill. Jöfnuður í tekjum er meiri á Íslandi en á öðrum Norðurlöndum. En nú blasir við stöðnun lífskjara, ekki síst hjá millistéttinni. Ávinningur háskólamenntunar hvað varðar launakjör er ekki augljós og í því felast vond skilaboð um menntun og vond framtíðarmynd fyrir hagsmuni þjóðarinnar. Hagfræðistofnun hefur bent á að laun háskólamenntaðra hafi staðið í stað frá aldamótum. Það er mikið áhyggjuefni að svo sé. Hvaða atvinnustefnu er verið að skapa þegar þetta er hagsmunamatið? Hvernig ætlum við að laða heim það fólk sem fer út í háskólanám ef við erum ekki samkeppnishæf um laun og lífskjör?