störf þingsins.
Virðulegi forseti. Hér undir þessum dagskrárlið, störfum þingsins, langar mig að koma örlítið inn á mikilvægi samstarfs við kollega okkar í öðrum löndum. Það fer nefnilega ekki bara fram í gegnum Íslandsdeildir eða svokallaðar alþjóðanefndir þingsins heldur líka í gegnum framtíðarnefnd þingsins. Framtíðarnefnd íslenska þingsins var komið á fót á grundvelli bráðabirgðaákvæðis IV í þingsköpum og með leyfi forseta langar mig aðeins að koma inn á hver hennar helstu verkefni eru:
„Nefndin skal m.a. fjalla um áskoranir og tækifæri Íslands í framtíðinni að því er snertir tæknibreytingar, langtímabreytingar á umgengni við náttúruna, lýðfræðilegar breytingar og sjálfvirknivæðingu.“
Við sem sitjum í framtíðarnefnd Alþingis höfum horft til fyrirmyndarinnar í finnsku framtíðarnefndinni. Finnar hafa nefnilega rekið á vettvangi síns þings framtíðarnefnd í ríflega 30 ár og við vorum svo lánsöm í framtíðarnefndinni hinni íslensku að fá gesti frá finnsku framtíðarnefndinni til okkar í dag, en við heimsóttum þau fyrir að verða tveimur árum síðan til að kynna okkur það starf sem þar fer fram. Sjálf erum við, m.a. vegna þess sem ég nefndi hér áður, að þetta ákvæði um framtíðarnefnd íslenska þingsins er á grundvelli bráðabirgðaákvæðis í þingsköpum, að feta okkar fyrstu spor hér á vettvangi Alþingis með þessa nefnd. Við höfum til að mynda undanfarið lagt ríka áherslu á að kafa ofan í gervigreindina. Við höfum og munum standa fyrir málþingum hennar vegna og ætlum m.a. að brjóta þetta örlítið upp og nýta okkur tæknina í því samhengi þegar við erum að þokast áfram í að takast á við það verkefni. Mig langar því bara að nota hér tækifærið, virðulegi forseti, og hvetja hv. þingmenn til að fylgjast með og taka þátt í vinnu framtíðarnefndar Alþingis því að við þurfum líka að finna út úr því hver framtíð téðrar nefndar á að verða þegar þessu, hvað eigum við segja, kjörtímabili er lokið. (Gripið fram í.)