mat á endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna.
háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S) (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég hef verið ótrúlega skýr með það hvað það er mikilvægt að fá fleiri í háskóla og hvað það skiptir miklu máli fyrir okkur að styðja háskólana betur, fá þar inn fjölbreyttan hóp, fjárfesta í nemendum af því að það skiptir máli fyrir samfélagið okkar og fólkið okkar í heild sinni. Ég get farið í löngu máli yfir það hvar möguleikar Íslands liggja til lengri tíma, hvort sem við lítum til verðmætasköpunar og til þess að halda hér í nýsköpunar- og tæknifyrirtæki með spennandi hálaunastörfum og hversu mikilvægt það er að leggja áherslu á menntun, leggja áherslu á greinar sem við erum að mennta of lítið í og minnkar samkeppnishæfni okkar. Ég get líka talað um samfélagslegar áskoranir eins og í heilbrigðis- og menntakerfinu, við þurfum að mennta fleiri fyrir þau tækifæri. Allt þetta snýr að umhverfi háskólamála í heild sinni og hvernig við erum að styðja nemendur í gegnum það, hvaða nemendur við erum að fá og hvernig við erum að fjárfesta í háskólunum og stuðningi við nemendur. Þetta eru auðvitað risastór mynd og ég sem háskólaráðherra hef lagt mikla áherslu á það (Forseti hringir.) frá því að ég tók við þessu embætti að tengja háskólana einmitt við samfélagið, sem ég held að hafi verið gert vel í þessu ráðuneyti.