lögreglulög.
Virðulegi forseti. Við höldum áfram umræðu frá því í gær og gott að sjá hæstv. dómsmálaráðherra hér í hliðarsal sem ætlar ekki að missa af umræðunni og framhaldi hennar, eins og okkur fór á milli hér fyrr í dag. Við í þingflokki Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs afgreiddum þetta frumvarp frá okkur til þinglegrar meðferðar. Eins og við þekkjum þá sáum við frumvarp af sama meiði á síðasta löggjafarþingi og þó að frumvarpið hafi nú tekið breytingum til hins betra frá fyrri framlagningu gerir þingflokkur VG fyrirvara við málið.
Áhyggjur þingflokksins lúta helst að því að ekki sé gengið no?gu langt til þess að tryggja re?ttaröryggi borgaranna, einna helst þar sem samti?maeftirlit og eftirlit með aðgerðunum þarfnast úrbóta.
Að mati þingflokksins teljum við varhugavert að gera sty?riho?p um skipulagða brotastarfsemi að endurskoðunaraðila um lögmæti a?kvarðana um að viðhafa eftirlit, þar sem sa? ho?pur telst tæplega o?ha?ður aðili sem ætla megi að geti endurskoðað lögmæti a?kvarðana með fullnægjandi hætti. Þar að auki skortir að mati þingflokksins réttarúrræði til handa borgurum sem telja a? se?r brotið en það getur skapað hættu a? tortryggni borgara i? garð yfirvalda, tryggir ekki nægilega ly?ðræðisleg sjo?narmið og grundvöll re?ttarri?kins sem verður að treysta að mati þingflokks VG. Þá þarf að auka sky?rleika um varðveislu, vinnslu og eyðingu upply?singa.
Virðulegi forseti. Það varðar grundvallarþætti réttarríkisins og sterk lýðræðisleg sjónarmið að slíkar aðgerðir séu takmarkaðar, skýrar, lúti ströngu eftirliti og séu ekki háðar geðþótta.
Þá er þingflokkur VG enn á því að frumvarpið þyrfti að taka þeim breytingum í meðförum hv. allsherjar- og menntamálanefndar að aðkomu dómara verði krafist vegna ákvörðunar um eftirlit gegn einstaklingum vegna afbrotavarna svo tryggja megi réttaröryggi borgaranna. Þingflokkur VG telur það eðlilegan þátt í mótun réttarumhverfisins að grípa til allra þeirra ráðstafna sem nauðsynlegar eru til að tryggja réttaröryggi borgaranna, þar á meðal koma í kring ferli þar sem öryggisvottaðir dómarar og annað nauðsynlegt starfsfólk komi að málinu.
Þá teljum við í þingflokki VG að það verði að skoða það gaumgæfilega í þinglegri meðferð málsins hvernig hægt sé að tryggja réttarúrræði handa einstaklingi sem fær tilkynningu um að aðgerðir gagnvart honum voru ólögmætar. Staða einstaklings sem fær slíka tilkynningu um ólögmætt inngrip er óljós og ófullnægjandi að okkar mati eins og frumvarpið stendur nú. Það er brýnt að tryggja raunhæf og virk úrræði handa borgurunum til að geta leitað réttar síns.
Að endingu er brýnt að mati þingflokks VG að takmarkanir verði settar á þær upplýsingar sem safnast á meðan borgari sætir eftirliti, þ.e. á geymslu, varðveislu og notkun upplýsinganna. Að okkar mati í þingflokknum væri til bóta að taka af vafa um reglur um eyðingu, nýtingu, varðveislu og deilingar vegna reksturs miðlægs gagnagrunns.
Virðulegi forseti. Ég hef nú reifað stuttlega þær athugasemdir sem við höfum haft í þessu máli í þingflokki VG. Við breytingar á samfélaginu í þessa veru er mikilvægt að við vöndum vel til verka. Það veit ég að við erum öll sammála um hér í þessum sal. Ég veit jafnframt að hv. allsherjar- og menntamálanefnd mun gera það við þinglega meðferð málsins, þ.e. vanda vel til verka eins og hún er þekkt fyrir.