lögreglulög.
Virðulegur forseti. Frelsið er yndislegt og ekki bara yndislegt heldur eitt það dýrmætasta sem við eigum. Frelsið til að skrifa stöðufærslu á samfélagsmiðil, fara til læknis, til að fara í bókabúð og blaða í bók án þess að einhver fylgist með og skrái hjá sér hvaða læknir og hvaða bók. Á 18. öld setti Jeremy Bentham fram kenninguna um Panoptikon þar sem einn fangavörður í miðlægum turni hefur stjórn á hegðun heils fangelsis af því að fangarnir vita aldrei hvort eftirlit er haft með þeim eða ekki og hegða sér þess vegna alltaf eins og það sé verið að horfa. Ef við eigum von á því að einhver geti alltaf verið að fylgjast með okkur án okkar vitneskju hefur það áhrif á hegðun okkar og líðan. Frelsið er fólgið í því að geta dansað án þess að einhver sé að horfa.
Mismunandi viðhorfum hægra og vinstra fólks til grundvallaratriða mannréttinda hefur oft verið lýst sem frelsi til að gera og frelsi frá því að þola. Frelsi, hvort sem er einstaklings eða samfélags, verður ekki rofið úr samhengi við lýðræði og mannréttindi. Þess vegna er svo gríðarlega mikilvægt að engar breytingar séu gerðar á lögvörðum rétti til friðhelgi einkalífs án þess að til komi gríðarlega mikið eftirlit með svo íþyngjandi eftirliti. Það frumvarp sem við ræðum hér í dag er til komið vegna raunverulegs vanda; breytts umhverfis í löggæslu, nýs veruleika í skipulagðri brotastarfsemi, hættu á hryðjuverkum. En þrátt fyrir það þarf að vanda til verka og gæta þess í hvívetna að frelsi og mannréttindi séu höfð að leiðarljósi í stórum breytingum á lagaumhverfi. Samkvæmt þessu frumvarpi mætti lögreglan leggja sig eftir því, í vinnunni, að skoða allt sem að einstaklingi snýr í almannarýminu, hvort heldur er á netinu eða úti á götu, stofna til kynna, búa til netfang, setja sig í samband við fólk án þess að vera undir sínu rétta nafni eða stofnunar, fylgja fólki eftir í bókabúð og til læknis, svo framarlega sem lögreglustjóri samþykki það álit undirmanns síns að viðkomandi sé grunsamlegur.
Viðkomandi einstaklingur myndi kannski aldrei vita af því að einhver væri að fylgjast með honum, henni, hán, þar sem í lögunum er ekki skylda að upplýsa fólk eftir á um að eftirlit hafi verið haft með því. Vissulega getur nefnd um eftirlit með lögreglu farið fram á að lögreglustjóri upplýsi þau sem hafa verið undir eftirliti og ef eftirlitið var að ósekju hefur fólk tækifæri til að leita réttar síns fyrir dómstólum — eftir á og kannski, ef einhver sér ástæðu til að segja viðkomandi frá.
Það er alþekkt í sögunni, og sérstaklega pólitískri sögu, að fram komi krafa og þrýstingur yfirvalda um auknar heimildir til eftirlits með tilvísun til aukinnar ógnar. Hér má sem dæmi nefna að síðan 11. september 2001 höfum við öll farið úr skónum og skammtað okkur vökva á flugvöllum og við höfum séð margar hliðstæður þar sem dregin er fram raunveruleg ógn og raunverulegur ótti sem síðan er beitt sem röksemdum fyrir auknum heimildum lögreglu eða annarra valdhafa.
Við sem hér sitjum verðum að gera okkur grein fyrir afleiðingum þess að setja slík lög, þar sem lögreglu verður gert kleift að hefja rannsóknir og eftirlit með aðilum án þess að fyrir liggi rökstuddur grunur um tiltekið afbrot sem framið hefur verið eða er í bígerð. Rannsóknin fer í rauninni fram áður en brot er framið og jafnvel án þess að grunur sé um að brotið verði framið. Í okkar samfélagi í dag er hinn hugsanlegi glæpur tengdur skipulagðri brotastarfsemi og ógn við öryggi ríkisins. Einhvern tíma í framtíðinni gæti hinn hugsanlegi glæpur verið að vera ósammála ríkjandi yfirvöldum, hafa róttækar hugmyndir um umhverfis- og náttúruvernd eða eitthvað eins persónulegt og að drýgja hór í hjarta sínu. Og einn lögregluþjónn metur hvað gæti mögulega orðið glæpsamlegt athæfi og ákveður alvarleika og hversu áríðandi slíkt eftirlit er og einn lögreglustjóri samþykkir, einn og sjálfur, a.m.k. í tvo sólarhringa.
Þess vegna þarf að vanda til verka, ekki aðeins við smíði laganna — og ég veit að hv allsherjar- og menntamálanefnd, þar sem ég sæki fundi núna, tekur hlutverk sitt mjög alvarlega og mér er kunnugt um alla vinnuna sem þar fór fram við síðustu framlagningu þessa frumvarps — heldur einnig í framkvæmd og umræðu þannig að byggt verði upp traust til þeirra embætta sem slíkar valdheimildir hafa.
Traust skiptir öllu máli. Það hefur komið fram að afhending gagna frá lögregluembættum til nefndar um eftirlit með lögreglu er ábótavant á stundum og meðferð gagna sem eiga að vera trúnaðarmál er einnig stundum ábótavant. Það eru því miður til dæmi og fleiri en eitt og fleiri en tvö um að lögreglufólk, sem er upp til hópa afbragðsfólk en samt bara fólk, nýti sér aðstöðu sína til að fletta upp í gagnagrunnum lögreglunnar, persónulegum upplýsingum um einstaklinga, án gildra ástæðna. Í nýjustu skýrslu þessarar nefndar sést að notkun búkmyndavélar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu getur verið ónákvæm og við sjáum ítrekað að viðkvæm gögn úr kynferðisbrotamálum fara á flakk, sem er með öllu ólíðandi, virðulegi forseti.
Traust til opinberra stofnana er hverju lýðræðissamfélagi mikilvægt. Traust til lögreglu hefur verið mikið síðustu ár en árið 2022 féll það um 9 prósentustig. Það er mjög mikilvægt að öll geri sér grein fyrir því að það er til mikils að vinna að efla traust á þessa grundvallarstofnun ríkisins og auknar valdheimildir án eftirlits, gera það ekki að óbreyttu að mínu mati. Það er því nauðsynlegt að komið sé á kerfi þar sem mannréttindi og persónuvernd er í forgrunni, gögn eru dulkóðuð og aðgangsstýrð og ópersónugreinanleg og að auki er mikilvægt að tryggja réttaröryggi borgaranna þannig að úrskurð dómara þurfi til að slíkt eftirlit geti átt sér stað. Og kannski það mikilvægasta af öllu: Hvernig við tökum á því ef eftirlit er haft með einstaklingi að ósekju og hver réttur viðkomandi er í slíkri stöðu.
Í stuttu máli er þetta frumvarp framför frá fyrra frumvarpi en þarfnast mun betri vinnslu, m.a. með tilliti til eftirlits með lögreglu, áður en það er fullbúið. Auk þess vantar fjármagn inn í lögregluna til að ráða við þessi stóru verkefni, byggingu kerfa, gagnageymslu og vinnslu á þeim skala sem slíkar heimildir krefjast og eins og var ítrekað bent á í umræðunni í gær þá vantar þjálfaðan og upplýstan mannafla. Síðast en ekki síst að slíku eftirliti skuli aðeins beitt þegar það telst nauðsynlegt og aldrei gengið lengra en raunverulegt og einstaklega vel rökstutt tilefni er til.
Virðulegi forseti. Frelsið er yndislegt. Við verðum að gæta þess að frelsið frá íþyngjandi eftirliti sé í heiðri haft og rétturinn til friðhelgi og einkalífs sé varinn, jafnvel þótt til komi auknar rannsóknarheimildir lögreglu.