154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

lögreglulög.

707. mál
[16:36]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Við ræðum hér um breytingar á lögreglulögum sem lúta að því fyrst og fremst að auka heimildir lögreglunnar, almennrar lögreglu, til að hafa eftirlit með almennum borgurum. Það sem er kannski helst áhugavert við þær heimildir sem verið er að bæta hér við er heimild til að hafa eftirlit með einstaklingum sem hafa hvorki brotið af sér né eru grunaðir um að hafa brotið af sér. Það er almenn heimild til þess að fylgjast með almennum borgurum í því sem kallað er almannarými, í rauninni á ákaflega veikum grunni, á þeim grunni að lögreglu hafi borist upplýsingar, það sem á síðan að færa í orðalagið áreiðanlegar upplýsingar, sem þó er hvergi skilgreint, um að viðkomandi hafi tengingu við skipulagða brotastarfsemi. Þetta er auðvitað áhyggjuefni, fyrst og fremst vegna þess hversu óljós heimildin er og vegna þess að á Íslandi er ekkert virkt sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu líkt og hins vegar er í öllum þeim ríkjum sem við berum okkur saman við. Því skýtur það skökku við að ein helsta röksemdin fyrir þessum breytingum sé að færa okkar kerfi nær því sem gengur og gerist í nágrannaríkjunum, vegna þess að það er ekki það sem er verið að gera. Heimildina telur hæstv. ráðherra og þau sem styðja þetta mál nauðsynlega til að koma í veg fyrir að fólk brjóti af sér.

Þetta er auðvitað mjög háll ís sem við erum komin út á þarna og þetta hefur verið reynt að fegra með því að kalla það fögrum orðum, því orði sem ég vona hafi kannski ekkert endilega með sjálfsögðum hætti jákvæða mynd í hugum fólks, orðinu afbrotavarnir. Það hljómar ágætlega, afbrotavarnir, vegna þess að varnir eru, held ég, hugtak sem hefur tiltölulega jákvæða þýðingu í hugum fólks og auðvitað viljum við helst koma í veg fyrir afbrot frekar en að bregðast við þeim eftir að þau hafa verið framin. Ísinn sem við erum hins vegar komin út á þarna er sá að ef lögregla ætlaði sér að koma í veg fyrir öll afbrot sem gætu mögulega verið framin á landinu þá þyrfti hún ansi umfangsmiklar eftirlitsheimildir með almennum borgurum. Það er dálítið lítið gert úr þessari heimild í þessu frumvarpi með því að vísa til þess að þarna sé einungis talað um eftirlit í almannarými. Það sem hins vegar gerir þetta alvarlegt er að þetta þýðir að lögreglan getur elt einstakling, fylgst með ferðum hans hvert sem hann fer og haldið utan um þær upplýsingar, skráð þær niður og annað slíkt og jafnvel fengið upplýsingar, aðgang að t.d. myndum úr eftirlitsmyndavélum sem lögreglan getur í dag fengið ef það er grunur um afbrot en með þessari heimild gæti lögreglan fengið myndir úr eftirlitsmyndavélum til að fylgjast með fólki sem er ekki einu sinni grunað um að hafa gert nokkurn skapaðan hlut af sér vegna þess að hún hefur fengið það sem lögreglan metur áreiðanlegar upplýsingar um að viðkomandi hafi tengsl við skipulagða brotastarfsemi.

Þetta er auðvitað allt mjög loðið. Það er hins vegar, það er viðurkennt í okkar réttarkerfi, í lýðræðisríkjum, að stjórnvöld geti gripið inn í hin mikilvægu mannréttindi friðhelgi einkalífsins á ákveðnum forsendum og með ákveðnum skilyrðum. Þetta hefur verið nokkuð skýrt afmarkað af hálfu Mannréttindadómstóls Evrópu sem hefur staðfest það að ríki geti jafnvel haft eftirlit með borgurum án þeirra vitundar, jafnvel án þess að þeir hafi brotið af sér. En algjört frumskilyrði fyrir því að eitthvert slíkt eftirlit sé heimilað er að sé kerfi, ferli, stofnun, einhvers konar aðili sem tryggir að reglum um þetta eftirlit sé fylgt. Tilgangurinn þarf að vera skýr og skilyrðin þurfa að vera skýr og þau þurfa að vera ströng. Það er ekki um það að ræða í þessu frumvarpi eins og því er stillt hér upp.

Á Íslandi er, eins og ég sagði hérna áðan, ekkert virkt sjálfstætt eftirlit með störfum lögreglu. Það er ákveðið eftiráeftirlit með beitingu ákveðinna eftirlits- og þvingunarheimilda sem gengur fyrst og fremst út á það að tryggja að skráning upplýsinga og meðferð þeirra sé í samræmi við lög. Því miður hafa skýrslur útgefnar á undanförnum árum sýnt að þarna er pottur alvarlega brotinn. Lögreglan hefur nú þegar gríðarlega víðtækar heimildir til inngripa í friðhelgi einkalífs fólks. Þær heimildir eru hins vegar nokkuð skýrar og afmarkaðar við að grunur sé um afbrot. Margar þeirra þarf að staðfesta með úrskurði dómara, sem fæst reyndar nánast sjálfkrafa, en þar er samt sem áður ferli sem hægt væri að kalla einhvers konar eftirlit.

Lögreglunni er skylt þegar hún aflar ákveðinna upplýsinga, t.d. upptaka, hljóðupptaka úr hlerunarbúnaði, myndataka úr myndavélum, eftirlitsmyndavélum — að fara með þessi gögn með ákveðnum hætti. Það þarf að tryggja að enginn óviðkomandi hafi aðgang að gögnunum. Það þarf að tryggja að þau séu eingöngu notuð í þeim tilgangi sem heimildin til að afla þeirra miðaðist við. Það þarf að tryggja að ekki sé aflað meiri upplýsinga en þörf krefur, að inngripið sé ekki meira íþyngjandi en erindið kallar á og það þarf að tryggja eyðingu gagna eftir að þau hafa verið nýtt í það sem þeim var ætlað. Á þessu eru miklir brestir og þetta hefur komið í ljós. Hvers vegna er það? Það er mjög líklega, sennilega mikið til, vegna þess að það er í raun ekkert eftirlit, ekkert aðhald með því að lögregla fylgi þeim ferlum sem henni ber. Ég ætla ekki að standa hér og halda því fram að það sé nokkurn tímann af illum hug, enda er óþarfi að halda því fram. Fólk er hins vegar fólk og álag á lögreglu er mikið og annað slíkt en þarna er um gríðarlega mikilvægan ramma í okkar réttarkerfi að ræða. Þess vegna eru þessi skilyrði sett. Þessi skilyrði fyrir því að lögreglan hafi heimildir til eftirlits með borgurunum eru sett til að tryggja grundvallarforsendur réttarríkisins.

Við búum í réttarríki, sem á ensku er kallað „the rule of law“. Það felur í sér fyrst og fremst að allir í samfélaginu séu jafnir fyrir lögum, jafnt almennir borgarar sem valdhafar. Þetta krefst þess að með valdhöfum, með valdi, valdheimildum sé virkt eftirlit, í rauninni af hálfu borgaranna, í rauninni á lýðræðislegum grunni. Það er ekki óalgengt að eftirlit með virkilega íþyngjandi heimildum lögreglu sé á vegum þjóðkjörins þings eða stofnana á þess vegum. Við þurfum ekkert að finna upp hjólið í þessum efnum. Öll ríki sem við viljum bera okkur saman við eru með eftirlit af þessu tagi. Hvaða ríki eru ekki með eftirlit af þessu tagi? Það eru ríki þar sem stuðst er við sjónarmið sem hefur verið lýst hér til rökstuðnings þessu máli um að við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir afbrot, til að tryggja að fólk fylgi þeim reglum sem við höfum komið okkur saman um í þessu samfélagi. Það er í sjálfu sér ekkert mikið mál að framfylgja þeim og ef eina forsendan er sú að við ætlum að framfylgja lögum og tryggja að þau séu ekki brotin, þá eru til ansi áhrifaríkar leiðir til þess. En áhrifaríkustu leiðirnar samræmast ekki okkar hugmyndum um lýðræðislegt réttarkerfi, réttarríkið.

Það er þess vegna sem þetta skiptir máli. Það er ekki hægt að tala um að eftirlit með störfum lögreglu snúist um einhverja tortryggni í garð lögreglu, að treysta ekki lögreglunni. Lögreglan hefur einkarétt á því að beita ofbeldi í okkar samfélagi. Það er eðlilegt að með aðila sem hefur slíkar valdbeitingarheimildir og þau tæki og tól sem hún hefur og þarf til þess að sinna sínum störfum sé eftirlit, það er mjög eðlilegt að með slíkum valdheimildum sé gríðarlega sterkt og virkt eftirlit. Það snýst um að tryggja gildin okkar. Það snýst ekki um að vefengja það að fólk starfi af einurð í sínu starfi. Þvert á móti.

Á það hefur verið bent að lögreglan sjálf er ekki mótfallin því að það sé eftirlit með hennar störfum enda felst í eftirliti ekki eingöngu það að horfa yfir öxlina á fólki og bíða eftir því að það reki sig á heldur aðhald og leiðbeiningar og rammi og það er vitanlega það sem fólk vill sem er að reyna að sinna sínu starfi. Það vill að mörkin sem það hefur séu skýr og þetta hefur komið fram.

Frumskylda lögreglu í ofanálag í samfélagi er að gæta öryggis fólks í samfélaginu. Það er frumskylda lögreglunnar. Það ætti því alltaf að vera hlutverk lögreglunnar að draga úr óróa, róa aðstæður, skapa sátt og ekki vinna í aðra átt. Það að lögreglan upplifi sig örugga í sínu starfi er líka forsenda þess að hún bregðist við aðstæðum með þeim hætti sem best verður á kosið. Á undanförnum árum, og áratugum held ég, örugglega, hefur traust til lögreglu á Íslandi mælst nokkuð hátt, held ég, hærra en gengur og gerist víða í ríkjum. Þetta gerir lögreglunni auðveldara að sinna sínum störfum. Það að traust ríki á milli valdhafa og almennings er gríðarlega verðmætt. Það eru mikil verðmæti fólgin í því fyrir okkar samfélag og fyrir lögregluna sjálfa. Ef lögreglunni eru faldar of miklar heimildir til eftirlits með borgurunum án þeirra vitundar, án þess að nokkuð sé til að tryggja það að þessum heimildum sé ekki misbeitt, hvort sem er af ásetningi eða gáleysi eða öðru, er það augljóslega líklegt til að skerða traustið, rýra traustið og skapa tortryggni, óöryggi borgaranna gagnvart valdhafanum. Hið sama á við þegar lögregla er vopnuð vopnum sem almenningi er óheimilt að bera. Það eykur á og gerir valdaójafnvægið enn sýnilegra sem sannarlega er til staðar á milli lögreglu og borgaranna.

Þetta frumvarp fjallar um svokallaðar afbrotavarnir, eins og ég sagði hér áðan, að koma þurfi í veg fyrir afbrot áður en þau eru framin. En hverjar eru hinar raunverulegu afbrotavarnir? Hvers vegna brýtur fólk af sér? Það er ekki vegna þess að það er ekki verið að fylgjast með því. Flest okkar göngum í gegnum lífið nokkuð laus við það að vera mikið að brjóta lög sem lögreglan væri að skipta sér af, kannski eitthvað minni háttar eins og stöðumælasektir og annað slíkt, en afbrotavarnir, hinar raunverulegu afbrotavarnir, eru auðvitað að komast að rót þess að fólk fremur afbrot og uppræta þær. Hinar raunverulegu afbrotavarnir eru því ekki auknar valdheimildir lögreglu eða eftirlitsheimildir, auknar heimildir til að fylgjast með ferðum og athöfnum almennra borgara og til að beita líkamlegu valdi þegar út af bregður. Hinar raunverulegu afbrotavarnir eru ekki myndavélar og hlerunarbúnaður, ekki rafbyssur og hálfsjálfvirkir rifflar. Hinar raunverulegu afbrotavarnir eru aukinn skilningur og samkennd í samfélaginu með því að tryggja afkomu fólks og öryggi, tryggja að frumþörfum manneskjunnar sé sinnt, þörfinni fyrir líkamlegt öryggi, líkamlegt heilbrigði, þak yfir höfuðið, mat í maga, virðingu, skilning og þörfinni fyrir að eiga sér stað í samfélaginu. Því miður hefur ekki farið mikið fyrir aðgerðum í þá átt hjá þessari ríkisstjórn sem eru sannarlega mikil vonbrigði. Ég hef áhyggjur af þeirri þróun, þeirri vegferð sem ríkisstjórnin er á, sérstaklega þegar kemur að lögreglumálum þar sem við erum að snúa í átt að eftirlitssamfélagi þar sem bilið á milli valdhafa og almennra borgara er að breikka. Ég hef áhyggjur af þessu, ekki bara fyrir borgarana og okkar samfélag líkt og ég sagði heldur fyrir lögregluna sjálfa svo að hún geti sinnt sínum störfum. Á það hefur verið bent ítrekað í þessum þingsal að lögreglan er fáliðuð. Hún hefur í rauninni ekki þann mannafla, þau tæki og þá þjálfun sem hún þarf til að sinna sínu starfi og þá er ekki á það bætandi með því að auka tortryggni í samfélaginu með því að veita henni auknar eftirlitsheimildir.