154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

lögreglulög.

707. mál
[16:52]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þátttökuna í þessari umræðu og fyrir spurninguna. Nú hef ég hreinlega gert það að ævistarfi mínu að kynna mér mannréttindi sem lagalegt hugtak og Mannréttindadómstóll Evrópu gegnir lykilhlutverki við að móta og skýra þau mannréttindi. Það eru, eins og ég nefndi í ræðu minni, ákveðin grundvallarmannréttindi sem við höfum og flest þeirra er heimilt að grípa inn í að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, að fyrir því sé lagaheimild, að inngripið sé nauðsynlegt í lýðræðissamfélagi og að ekki sé gengið lengra en þörf krefur. Í þessum málaflokki held ég að Mannréttindadómstólnum hafi tekist nokkuð vel til við að ramma inn skilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi og það eru skilyrði sem þurfa að vera fyrir hendi. Ég er algerlega andvíg því að við stígum eitt einasta skref í þessa átt án þess að tryggja að öll skilyrðin sem Mannréttindadómstóllinn hefur tíundað séu uppfyllt og það er ekki verið að gera það í þessu frumvarpi.

Mig langar hins vegar til að hvetja hv. allsherjar- og menntamálanefnd, sem mun ræða þetta mál, til þess að láta gera ítarlega, sjálfstæða og fræðilega úttekt á ákvæðum þeim sem lögð eru til í frumvarpinu og kanna samræmi þeirra við stjórnarskrá. Ég myndi alla vega fara rólegri að sofa. Það hefur því miður ekki verið alveg nógu mikil fagmennska, að mínu mati, í lagasetningu meiri hlutans á þessu þingi að þessu leyti þar sem því hefur ítrekað verið neitað að fara í úttekt af þessu tagi. En ég ætla að hvetja hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að gera það í þessu máli og ég held að við hljótum öll að vera sammála um að við viljum ekki stíga skref í áttina að einhverju eftirlitssamfélagi (Forseti hringir.) án þess að tryggja grunnstoðir lýðræðisríkisins, réttarríkisins. Ég held við séum sammála um það, ég trúi því.