lögreglulög.
Virðulegur forseti. Já, ég held að ég og hv. þingmaður, og örugglega flest hér inni, getum verið algerlega sammála um að við viljum ekki auka eftirlitsheimildir nema gætt sé að þessu og það þýðir að hafa þarf einhvers konar eftirlit með því. Grunnstoðir lýðræðisins eru mikilvægar þannig að við munum að sjálfsögðu fara vel yfir þessa þætti í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég heyri á ræðum þingmanna að fólk hefur enn efasemdir um eftirlit með lögreglu og þeim ferlum sem verið er að leggja til í frumvarpinu og við munum að sjálfsögðu fara mjög vel yfir það. En hv. þingmaður sagði líka í ræðu sinni að nánast öll ríki sem við berum okkur saman við hafi meira eftirlit en hv. þingmaður telur vera hér og vísar meira að segja í þingnefndir sem eru til staðar sums staðar með eftirlitsheimildir. En er hv. þingmaður ekki örugglega sammála mér í því að þar erum við að tala um allt aðrar heimildir en verið er að ræða í frumvarpinu? Ég gæti líka alveg nefnt að ég gæti verið fylgjandi því að setja á stofn leyniþjónustu en ef við myndum gera það, eins og öll ríki sem við berum okkur saman við og erum í löggæslusamstarfi við, þyrftum við að sjálfsögðu að hafa mikið eftirlit með því og þá þyrftum við að horfa á þær fyrirmyndir sem eru annars staðar. En þetta frumvarp fjallar bara ekkert um það.
Í rauninni fjallar þetta frumvarp um að lögreglan geti haft sambærilegt eftirlit og blaðamenn. Við sjáum kannski fréttir af því að Áslaug Arna hafi farið í spinning-tíma, það er frétt úr Morgunblaðinu. Hver fylgdi henni að líkamsræktarstöðinni og vissi að hún hefði farið í spinning? Eða að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hafi farið á einhvern bar um helgina? Þetta er skrifað af Morgunblaðinu og fréttamenn geta skrifað fréttir um þetta. En lögreglan mætti í raun ekki gera það. Er ekki allt í lagi að lögregla megi gera það sama og t.d. blaðamenn?