154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

lögreglulög.

707. mál
[16:59]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Í þessu eru áhugaverðar greinar og mér fannst áhugavert að heyra hæstv. ráðherra tala um að í þessu frumvarpi væru ekki þessar svokölluðu forvirku rannsóknarheimildir. Þær eru þar samt. Hæstv. ráðherra hristir hausinn hérna í hliðarsal en ég kinka kolli og ákveð að lesa upp það sem á að túlka sem forvirkar rannsóknarheimildir, 6. gr. a, aðgerðir í þágu afbrotavarnir, með leyfi forseta:

„Lögreglu er heimilt, í því skyni að stemma stigu við afbrotum, að nýta, svo sem til greiningar, allar þær upplýsingar sem hún býr yfir eða aflar við framkvæmd almennra löggæslustarfa og frumkvæðisverkefna, þar á meðal“ — þar á meðal, þetta er ekki tæmandi listi — „samskipti við uppljóstrara, eftirlit á almannafæri og vöktun vefsíðna sem opnar eru almenningi.“

Þetta síðasta atriði sérstaklega, vöktun vefsíðna sem opnar eru almenningi, er gríðarlega umfangsmikið eftirlit með umferð á netinu. Það er ekkert flóknara en það. Þennan texta er hægt að nota sem t.d. heimild fyrir því sem var verið að skoða fyrir ekki svo löngu síðan, þegar rannsóknarlögreglumaður þóttist vera sjálfstæður fjölmiðlamaður þegar verið var að reyna að komast að því hver setti upp sig síðuna „We're sorry“ vegna Samherjamálsins. Með þessum texta er hægt að réttlæta það að það sé einfaldlega verið að fylgjast með allri nettraffík á öllum síðum sem eru opnar almenningi, þar á meðal klámsíðum t.d. Þetta er ekkert flókið, það bara stendur í textanum. Lögreglan má fylgjast með umferð á almennum vefsíðum. Það eru gríðarlega viðamiklar njósnir, ekkert flóknara en það.

Ég átta mig alveg á markmiðinu eða meiningunni, að geta lesið það sem einhverjir eru skrifa á samfélagsmiðlum o.s.frv., en þetta er ekki tæmandi upptalning á atriðum og er auðveldlega hægt að túlka á víðtækari hátt, til notkunar á víðtækari athöfnum heldur en kannski er ætlast til að eigi að liggja hér á bak við. Þar liggur hundurinn grafinn þegar allt kemur til alls. Ég skal alveg kvitta upp á að ætlunin sé kannski ekki að reyna að hafa einhverjar forvirkar rannsóknarheimildir, það getur vel verið markmið ráðherra, en við lendum ítrekað í því að það er verið að snúa lagatúlkun fram og til baka og sagt: Nei, heyrðu, við getum túlkað þennan lagatexta á þann hátt að við getum verið að fylgjast með umferð á almennum vefsíðum, þar á meðal nettraffíkinni sjálfri, þ.e. heimsóknirnar á síðuna, „metadata“ svokallað sem þar er undir, sem er búið að vera að reyna að troða í gegnum eftirlitið hjá Fjarskiptastofu, held ég að það hafi verið, Póst- og fjarskiptastofnun, með öðru frumvarpi sem er sífellt búið að benda á að gengur ekki upp. Það er ekkert langt síðan, það var árið 2014, 2015 eða eitthvað svoleiðis, sem Sameinuðu þjóðirnar ítrekuðu friðhelgi á internetinu og gerðu aukabókun við mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna um það að friðhelgi á þar við líka. Það þýðir að þegar valdhafar, yfirvöld, eru að fylgjast með notkun fólks á netinu þá er verið að njósna ef það er án heimildar, ef það er án rökstuddra ástæðna. Það er ekkert flóknara en það í rauninni þegar allt kemur til alls.

Þau sem koma hingað og verja þetta frumvarp segja að lögreglan vilji alveg eftirlit. Ég hef heyrt það líka, ég hef heyrt lögregluna segja það líka, en það gerist samt bara ekki. Þær auknu eftirlitsheimildir sem eru settar hérna með gæðastjóra o.s.frv., innra gæðaeftirliti, eru í besta falli táknrænar varðandi það eftirlit sem þarf að vera. Það þarf að vera ytra eftirlit. Innra eftirlit er gott og blessað út af fyrir sig. Það er innra eftirlit og þar svarar fólk fyrir sig gagnvart starfsfélögum sínum, eins óháð og það á að vera gagnvart samstarfsfélögum, það er tiltölulega erfitt þegar allt kemur til alls.

Þau lög sem við setjum hérna á þingi skilgreina hvað er afbrot, hvað er glæpur og stundum förum við einfaldlega dálítið fram úr okkur. Það er svo auðvelt að nota bannhamarinn á eitthvað sem okkur finnst vera óþægilegt og slæmt, t.d. á vímuefnaneysli sem er mjög skaðleg. Það er rosalega auðvelt að nota bannhamarinn á það. Bara bannað. Áfengisbannið virkaði ekkert rosalega vel hér um árið. Úr varð gríðarleg glæpastarfsemi og þvílík spilling. Svipað á við um skipulagða glæpastarfsemi. Hún er knúin áfram og aðallega fjármögnuð af kaupum og sölum og framleiðslu á vímuefnum. Kjarninn í skipulagðri glæpastarfsemi liggur þar, að hluta til einmitt af því að þetta er ólöglegt. Það er búið að taka hamarinn og það er búið að lemja. Skamm. Má ekki. Þetta er bannað. Gæti verið hugmynd um að skipta aðeins um kúrs þar og fara í það sem við höfum kallað afglæpavæðingu og skaðaminnkun þar á bak við? Það var gert við áfengið og það hefur í rauninni líka verið gert með sígarettur og úr verður ekki glæpastarfsemi með meðhöndlun vímuefna, núna er það ríkisverslun áfengis. Einu sinni var það bannað, einu sinni var það glæpur og úr varð einn nafntogaðasti glæpamaður nútímasögunnar, Al Capone. Í dag væri hann frumkvöðull í einhverju handbruggeríi væntanlega, líklega frekar stóru, hann var dálítið athafnasamur þegar allt kemur til alls.

Svo eru ýmiss konar vandamál í samfélaginu sem drífa fólk til glæpa á þann hátt að þar eru í rauninni tækifærin sem fólk sér. Það fær hvergi séns annars staðar. Hvað með forvarnastarf einmitt hvað það varðar? Í staðinn fyrir að taka alltaf upp stóru og vondu löggukylfuna eða núna rafbyssuna — rafvarnarvopnið, ég biðst velvirðingar — til þess að lemja eða skjóta fólk hvernig væri að fara að hugsa aðeins? Með núverandi fyrirkomulagi er verið að reyna að refsa fíkn út úr fólki sem er undirstaða skipulagðrar glæpastarfsemi — mansalið og allt svoleiðis fylgir dálítið með, en peningarnir eru í vímuefnasölunni. Mansalið og allt hitt fylgir dálítið með vímuefnasölunni, er fylgifiskur. Það að taka út vímuefnasöluna og jafnvel lögleiða hana gerir þetta ekki að glæp lengur. Að sjálfsögðu er ekki hægt að breyta því sisvona og ætlast til þess að allt lagist, það er miklu meira sem þarf að gera, en ég held að það sé miklu mannlegri nálgun á vandann þegar allt kemur til alls. Það tókst ekki að banna áfengið úr fólki, það mun ekki heldur takast að banna önnur vímuefni úr fólki en áfengi, sem er sterkara heldur en margt af því sem er ólöglegt nú þegar.

Ég sé ekki að skref í áttina að, ég leyfi mér að fullyrða, njósnasamfélagi sé lausn á skipulegri glæpastarfsemi eða leysi upp skipulagða glæpastarfsemi. Ég leyfi mér að taka dálítið sterkt til orða hérna því að þetta er það alvarlegt. Þetta er ekki eins alvarlegt og var í fyrri frumvörpum, vissulega. En þetta er samt þarna í nægilega miklu magni til þess að það sé hægt jafnvel að taka hönd og fót í túlkun á lagaákvæðinu. Bara það að ráðherra flytji málið hérna á þann hátt að hérna sé verið að gefa lögreglu heimildir til að fara í alls konar aðgerðir án þess að það sé grunur um brot ætti að setja upp öll varnarflögg. Þegar maður skoðar síðan textann sem fylgir þar sem má sjá að það er einmitt hægt að skoða umferð á almennum vefsíðum þá kemur einfaldlega staðfesting á því rauða flaggi, flagginu sem ætti að koma upp þegar gengið er þannig til verks að það þarf ekki vera grunur til þess að hægt sé að fylgja fólki og rannsaka fólk og njósna um fólk.

Ég held að við þurfum annaðhvort að slípa þetta mikið til eða — við höfum talað við ríkislögreglustjóra um þá galla sem eru í gangi hvað varðar samstarf við lögreglu í öðrum löndum t.d. Við áttum okkur alveg á því að það er eitthvað sem þarf að bregðast við. Þetta frumvarp gerir það ekki. Það kom mjög á óvart, sérstaklega þegar fyrra frumvarpið kom fram, að það var enginn samhljómur milli þess sem ríkislögreglustjóri var að segja við okkur þegar við fórum þangað í heimsókn og því sem var síðan lagt fram, varðandi það hvernig þau smáatriði sem þurfti að slípa til væru útfærð. Ef við tölum um gullhúðun í lögum þá er þetta einmitt dæmi um það. Þetta er miklu stórvirkara heldur en að slípa af þá agnúa sem ríkislögreglustjóri var að tala um við okkur.

Ég vara við þessu, set hérna upp rauða flaggið og segi: Þetta er ekki nógu gott.