lögreglulög.
Forseti. Nei, þetta er ekki sambærilegt. Ég held að skilningur okkar sé ekki eins á því hvernig upplýsingar á netinu eru öðruvísi heldur en upplýsingar sem þú færð við að standa á götuhorni og telja bíla eða eitthvað svoleiðis. Það sem væri nærtækara í samanburði væri að lögreglan tæki einfaldlega mynd af öllum sem myndu keyra yfir þau gatnamót með sjálfvirkum greiningarbúnaði sem finnur hvað hinn og þessi heitir sem er að keyra og hverjir eru með viðkomandi í bíl. Þá erum við komin með sambærilegt dæmi og það að fylgjast með netumferð á almennum síðum af því að það eru miklu meiri upplýsingar sem þú getur seilst í ef þú ert að fara út í svoleiðis eftirlit. Ef það er vandamál með einhverjar síður, það koma ábendingar um að það sé eitthvað að gerast á einhverjum síðum eða eitthvað þess háttar, þá á að vera rosalega auðvelt að fá dómsúrskurð til að fylgjast með umferð á þeirri síðu en ekki bara öllum alltaf almennt. Það er vandinn sem ég er að benda á. Lögreglan á einmitt ekki að hafa þessa almennu heimild um að standa í rauninni á öllum götuhornum, taka myndir af öllum bílum og ökumönnum sem fara þar fram hjá daginn út og daginn inn, sem er sambærilegt við það að skoða netumferð á almennum síðum. Ég vona að ráðherrann átti sig á muninum á þessum dæmum og þeim agnúum sem ég bendi á og því sem passar ekki í samanburðardæmi ráðherra.