154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

lögreglulög.

707. mál
[17:20]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Ég fagna þessu frumvarpi heils hugar. Það er í raun orðið löngu tímabært að við gefum lögreglunni okkar þær heimildir sem hún þarf nauðsynlega á að halda til að geta sinnt störfum sínum, eins og ég hef heyrt að lögreglan kýs helst að geta gert. Það eru svona u.þ.b. fimm ár síðan við fengum fulltrúa frá ríkislögreglustjóra inn á þingflokksfund hjá Flokki fólksins. Þeir voru nýbúnir að gefa út skýrslu um skipulagða glæpastarfsemi á Íslandi. Þá voru þeir búnir að kortleggja níu hópa sem þeir vissu að stunduðu skipulagða glæpastarfsemi hér en einhverra hluta vegna höfðu þeir ekki krafta eða mátt og getu og heimildir til að vaða í þá hópa og uppræta þá, bara hreinlega uppræta þá, eins og ég hefði gjarnan viljað á þeim tíma að þeir hefðu haft heimildir til að gera.

Vaxandi þungi á störfum lögreglu, vaxandi ofbeldi og aukning skipulagðrar glæpastarfsemi er einfaldlega staðreynd sem íslenskt samfélag býr við í dag. Við horfumst í augu við gjörbreytt samfélag frá því sem við áður þekktum. Það er athyglisvert í öllu þessu að við skulum á sama tíma ekki koma til móts við lögregluna eins og við getum best. Þeir eru undirmannaðir. Þeir eiga í vök að verjast. Það er ekki bara að það stafi að þeim ógn heldur er farið að framfylgja þeirri ógn. Eins og hefur komið fram í fréttum og viðtölum við fulltrúa lögreglu var ekkert óalgengt að lögreglunni væri hótað hér áður fyrr en nú virðist það frekar vera orðið þannig að það á að reyna að fylgja því eftir. Unnin eru skemmdarverk og lögreglumenn hafa jafnvel flúið heimili sín til að koma sér einhvers staðar fyrir og koma sér í var undan hótunum sem að þeim hafa beinst.

Ég átta mig engan veginn á því hvernig er hægt að standa hér tímunum saman til að agnúast út í eitthvað sem er nauðsynlegt að komi til í samfélaginu í dag og flokka það alltaf undir þessa blessuðu persónuvernd og endalausa persónuvernd þegar persónuverndarlöggjöfin er orðin þvílík og slík að maður þarf að sýna sjálfum sér löggilt skilríki til að sanna fyrir sjálfum sér að maður sé maður sjálfur. Þetta er orðinn alger fíflagangur. Mig langar að vísa í þessa 15. gr. a sem virðist nú fara fyrir brjóstið á hv. þingmönnum Pírata, um aðgerðir í þágu afbrotavarna:

„Lögreglu er heimilt, í því skyni að stemma stigu við afbrotum, að nýta, svo sem til greiningar, allar þær upplýsingar sem hún býr yfir“ — sem hún býr sem sagt þegar yfir — „eða aflar við framkvæmd almennra löggæslustarfa og frumkvæðisverkefna, þar á meðal samskipti við uppljóstrara, eftirlit á almannafæri og vöktun vefsíðna sem opnar eru almenningi.“

Ja hérna. Hvað skyldi nú vera svona hræðilegt við að vakta þessar vefsíður sem opnar eru almenningi? Það er það sem við erum að tala um, eftirlit á almannafæri á vefsíðum sem opnar eru almenningi. (Gripið fram í.) Ég veit ekki betur en að það sé, eins og hæstv. dómsmálaráðherra nefndi áðan, búið að færa meira og minna allar skipulagða glæpastarfsemi inn á vefmiðlana. Hér hefur komið fram að það eigi bara að fá heimild hjá dómara í hvert einasta skipti sem uppi er sterkur grunur um að eitthvað sé að fara úrskeiðis. Það er þá eins gott að dómarinn sé vel klæddur og glaðvakandi því að kannski er ekki hægt að bíða klukkustundum saman eftir því að geta fengið heimild sem við erum að veita hér með þessari löggjöf.

Við í Flokki fólksins köllum eftir skilvirkni og heimildum til þess að verja okkar eigin þjóðarhag. Það er alger almannaheill að við getum farið að takast á við það ófremdarástand sem farið er að ríkja hér á götum borgarinnar þar sem annar hver maður gengur hér um með hníf og það þykir bara eðlilegt að halda um kviðinn í hvívetna vegna þess að maður hefur verið stunginn. Ég vil koma í veg fyrir þetta. Við í Flokki fólksins viljum standa í báðar lappirnar og við munum standa í lappirnar. Þetta frumvarp sem hér liggur fyrir er einstaklega hógvært frumvarp og það er eins gott að ég er ekki dómsmálaráðherra.

Svo er það hérna 15. gr. b, aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi. Að sjálfsögðu vilja Píratar ekki að við fáum aðgerðir til að sporna gegn skipulagðri brotastarfsemi, (BLG: Ertu ekki að djóka?) að sjálfsögðu ekki. (Gripið fram í.) (Forseti hringir.)

„Hafi lögregla áreiðanlegar upplýsingar um að tiltekinn einstaklingur taki virkan þátt í skipulögðum brotasamtökum eða hafi annars konar bein tengsl við slík samtök er henni heimilt að afla upplýsinga um viðkomandi skv. 15. gr. a auk þess að fylgjast með ferðum hans á almannafæri eða öðrum stöðum sem almenningur hefur aðgang að.“

Alltaf er það almenningur og staðir sem almenningur hefur aðgang að. En ég veit ekki hvers vegna við ættum að koma hér upp lögreglu ef hún á að vera bara eins og hver annar Jói eða Gunna úti í bæ. Ef þetta frumvarp ber með sér einhvern lit af lögregluríki þá er nú orðið illa fyrir okkur komið, svo að ekki sé meira sagt. Þetta eru afskaplega einfaldar heimildir og í raun hóflegar, mun hóflegri en áður hefur komið fram þegar verið er að reyna að koma til móts við lögreglu sem í raun vill ekkert frekar en að vernda samfélagið, koma í veg fyrir skipulagða glæpastarfsemi og í rauninni vinna sína vinnu af heilindum.

Í 15. gr. c er talað um afbrotavarnir í þágu öryggi ríkisins:

„Lögreglu er heimilt í samræmi við 15. gr. b að taka ákvörðun, eftir því sem við á, um eftirlit með einstaklingi sem lögregla hefur áreiðanlegar upplýsingar um að kunni að stafa sérgreind hætta af fyrir öryggi ríkisins eða almennings.“

Hvað skyldi þetta fela í sér? Hvað ætli séu áreiðanlegar upplýsingar? Eitthvað sem ég eða þú eða hver sem er getur haft eða fengið? Hvernig stendur á að þarna er komið með áreiðanlegar upplýsingar? Hvað felst í störfum lögreglunnar? Eru það ekki sérhæfð störf? Erum við ekki að ætlast til þess að hún verji okkur? Getum við ekki ætlast til þess að hún geri það? Eða má ég bara þakka fyrir að einhver brjálæðingur brjótist inn hjá mér, berji mig í klessu og ræni mig síðan? Er það bara allt í lagi? Hér er skipulögð glæpastarfsemi, hér flæða þjófagengi út um alla borg og það sem við fáum að heyra er: Æ, nú gengur enn ein aldan yfir, biddu nágranna þinn að vakta húsið ef þú skreppur úr bænum vegna þess að annars verður það tómt þegar þú kemur heim. Ég meina, þetta er að verða galið. Það er orðið galið þegar við hér, kjörnir fulltrúar, sem erum kjörin hér til að vernda hagsmuni samfélagsins í heild sinni, skulum ekki taka því fagnandi og reyna að koma almennilegum stoðum undir störf lögreglunnar. Og hér erum við að tala um sérgreinda hættu fyrir ríkið:

„Skilyrði er að hætta sé á að framið verði brot sem varðað getur a.m.k. fimm ára hámarksfangelsisrefsingu […]“

Hvers lags brot eru það sem varða allt að fimm ára fangelsi? Það eru grafalvarleg brot. Við sjáum hér alls konar ógeðslega ljót brot; nauðganir, misþyrmingar og alls konar brot þar sem einstaklingurinn er ekki einu sinni dæmdur í fimm ára fangelsi, þar sem refsiramminn er ekki einu sinni nýttur, þar sem við látum alls konar óþverralýð komast upp með það að fara jafnvel í gæsluvarðhald fyrir óþverraaðgerðir sem engum ætti að líðast í eðlilegu samfélagi, engum. Við erum jú með almenn hegningarlög en við nýtum ekki lagaheimildir almennra hegningarlaga yfir höfuð, yfir höfuð ekki. Það er af því að við erum svo góð.

„Lögreglu er heimilt að afla upplýsinga, þar á meðal persónuupplýsinga, hjá öðrum stjórnvöldum og stofnunum ef það er nauðsynlegt og til þess fallið að hafa verulega þýðingu fyrir störf hennar í tengslum við rannsókn alvarlegra brota gegn X. og XI. kafla almennra hegningarlaga, nr. 19/1940, eða til að afstýra slíkum brotum. Viðkomandi stjórnvaldi eða stofnun er skylt að verða við beiðni samkvæmt ákvæði þessu. Lögreglu er heimilt að leggja hald á muni í eigu eða vörslum annars aðila en sætir eftirliti eða beina því til eiganda eða vörsluhafa að veita aðgang að munum eða láta í té upplýsingar sem hann hefur að geyma, svo sem með því að afhenda afrit af skjali eða annars konar upplýsingum.“

Það sem ég er að velta fyrir mér, þegar fólk er að draga það í efa að lögreglan vilji vinni störf sín af heilindum: Hvað heldur fólk að lögreglan ætli að gera? Hvað heldur fólk að lögreglan ætti að gera þegar þeir eru í rauninni að rannsaka mál? Heldur kannski einhver hér að lögregla sé það vel mönnuð að hún geti verið með einhver lið, svona smáhópa hingað og þangað sem eru bara til þess að elta og njósna um náungann af því bara?

Við erum á tímamótum, íslenskt samfélag er á tímamótum. Við erum að horfast í augu við gjörbreytt samfélag, samfélag þar sem ofbeldi fer vaxandi, þar sem skipulögð glæpastarfsemi er sem aldrei fyrr og þar sem við erum líka að flytja inn skipulagða glæpastarfsemi. Það er svo önnur saga. En hvað því líður þá treysti ég lögreglunni fullkomlega. Hér erum við ekki að stefna í neitt lögregluríki. Hér erum við einungis að reyna að verja landið og þjóðina eins og kostur er með því fámenna lögregluliði sem við erum að bjóða upp á nú í dag. Við erum hér með á þriðju milljón ferðamanna. Við erum hér að verða tæplega 400.000. En hefur starfsgildum lögreglu fjölgað? Eru fleiri lögreglumenn sem eru látnir vinna verkin? Nei, þeir eru undirmannaðir og þeir eru allt of, allt of fáir. Það er staðreynd. Við höfum í rauninni nánast gert þeim ókleift að verja sig þegar á þá er ráðist. Ég hef skömm á því ef við ætlum ekki einu sinni í okkar eigin þjóðaröryggisstefnu að reyna að styrkja og tryggja þá vernd sem við mögulega getum haft með lögreglunni. Þannig að ég segi bara: Áfram veginn. Við í Flokki fólksins styðjum þetta frumvarp heils hugar en það hefði jafnvel mátt ganga mun lengra.