154. löggjafarþing — 75. fundur,  20. feb. 2024.

lögreglulög.

707. mál
[17:44]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fínu ræðu og þessa góðu söguskýringu, hvernig fyrirkomulag var hér á árum áður, fyrir 80 árum. Hv. þingmaður nefnir hér hvað við getum lært af sögunni. Ég held að við getum lært heilmikið af sögunni og ég held við höfum lært heilmikið af sögunni, því að þegar hann lýsir því hvernig síminn á heimili afa hans var hleraður — þetta getur ekki gerst í dag. Þetta getur ekki gerst í dag. Við höfum lært af sögunni.

Ég verð einnig að fá að segja að þessi fína ræða hv. þingmanns Pírata lýsir afskaplega vel hversu mikið Píratar eru að misskilja þetta frumvarp því að þetta frumvarp fjallar bara alls ekkert um hleranir, bara alls ekki. Þetta frumvarp fjallar um það að veita lögreglunni auknar heimildir til þess að fylgjast með almannarýminu. Ef lögregla telur sig aftur á móti þurfa að beita hlerunum við rannsókn mála þá er það ekki hægt án dómsúrskurðar. Það er alveg á hreinu. Það er ekki hægt að stunda hleranir hér og lögregla getur það ekki án þess að fá dómsúrskurð.

Svo vil ég fá að nefna það — ég geri það í seinna svari mínu.